Sprengju kastað á símamarkaðinn Óli Kristján Ármannsson skrifar 11. febrúar 2006 06:00 Í kirnglunni Hvorki Síminn né Og Vodafone eru tilbúin að gefa upp hvenær boðið verður upp á áskriftarleiðir með netsíma. Bæði segja hins vegar nýja tækni fela í sér mikil tækifæri og ætla að keppa við hvort annað og önnur fyrirtæki í nýju símaþjónustunni. Samsett mynd
Fjöldi fyrirtækja ætlar að bjóða nýja tegund símaþjónustu, svokallaða netsíma, eftir að Póst- og fjarskiptastofnun heimilaði í gær að símanúmer yrðu flutt úr hefðbundinni símaþjónustu yfir í nýja kerfið sem byggir á gagnasendingum yfir internetið (VoIP). Stofnunin hefur einnig ákveðið að úthluta sérstökum símanúmerum fyrir "flökkuþjónustu" sem ekki er bundin við ákveðna staðsetningu. Þau númer byrja á 49 og auðkennd með því. Stóru símafyrirtækin ætla bæði að bjóða upp á netsíma og Skýrr hefur hafið undirbúning að netsímaþjónustu fyrir almenning. Eins ætla Hive og fyrirtækið NetAFX að bjóða þjónustuna, en bæði bjóða nú þegar upp á símtöl yfir internetið. Svo hugsa internetþjónustur sér sumar til hreyfings. "Þetta er sprengja á Símamarkaðnum," segir Jón Elíasson, framkvæmdastjóri NetAFX, sem ætlar að bjóða flökkunúmer til að byrja með, en segist þó hafa alla burði til að bjóða fastnúmer líka. Þeim fylgja þó meiri kvaðir, svo sem um talhólf, númerabirtingu, hlerunargetu yfirvalda, rekstraröryggi og að hægt sé að hringja í neyðarnúmer. Jón segir ljóst að símakostnaður lækki mikið með nýju þjónustunni og bendir á að þróunin hafi verið sú erlendis. "Hjá Telio í Noregi er fólki boðið fyrir 1.500 krónur íslenskar á mánuði að tala frítt innanlands og upp að 150 mínútum til útlanda," segir hann. Guðmundur Kr. Unnsteinsson, framkvæmdastjóri Hringiðunnar, segir alla símstöðvar og símatækni almennt að færast yfir á IP staðla. Hann segir fyrirtækið vera að skoða af fullri alvöru að bjóða símaþjónustu og hafi þegar hafið umsóknarferli vegna þess. "En búnaðurinn er dýr og dýrt að gera þetta almennilega." Talsmenn Símans og Og Vodafone segja netsímann spennandi nýjung sem fylgi mörg ný tækifæri. Fyrirtækin eru þó ekki tilbúinn að segja til um hvenær nýjar áskriftarleiðir verði tilbúnar hjá þeim, málið sé í skoðun. Hreinn Jakobsson, forstjóri Skýrr, bendir á að VoIP tækni hafi verið í umræðunni síðustu átta árin og því kunni að vera óráð að fara sér of hratt. Hann segir fyrirtækið hins vegar stefna á að bjóða almenningi símaþjónustu og að unnið sé að undirbúningi þess. "Við sjáum í þessu heilmikil tækifæri og tæknin er á fljúgandi ferð," segir hann.
Birtist í Fréttablaðinu Innlent Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sjá meira