Innlent

Fá bætur í allt að þrjá mánuði

Í gær tóku gildi ný lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

Í þeim er gert ráð fyrir að foreldrar geti sameiginlega átt rétt á greiðslum í allt að þrjá mánuði, samkvæmt mati framkvæmdaraðila og að uppfylltum tilteknum skilyrðum laganna.

Þarna er hið opinbera að koma og lyfta undir bagga, þegar þeir sem í þessu lenda hafa nýtt sér að fullu önnur réttindi. Þetta kemur því til góðs við þá sem verst eru staddir, segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar sem sér um framkvæmd laganna.


Tengdar fréttir

Hefur umsjón með þjóðskrá

Í gær tóku gildi breytingar á lögum um þjóðskrá. Samkvæmt þeim flyst þjóðskrá frá Hagstofu Íslands og heyrir nú undir dómsmálaráðuneytið. Þá hafa þjóðskrá verið færð aukin verkefni við útgáfu vegabréfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×