Gestur tilnefndur í 5. sæti á lista Framsóknar? 7. febrúar 2006 12:05 Hús Framsóknarflokksins við Hverfisgötu MYND/Vilhelm
Endanlegur framboðslisti Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor hefur ekki verið ákveðinn. Ef allir á listanum verða færðir upp um eitt sæti, er hugsanlegt að Gestur Kr. Gestsson, sem lenti í áttunda sæti í prófkjörinu, verði tilnefndur í fimmta sætið. Anna Kristinsdóttir borgarfulltrúi, sem bauð sig fram í 1. sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík á dögunum, tilkynnti í gær að hún tæki ekki sæti á listanum, en hún endaði í 2. sæti í prófkjörinu. Reglur prófkjörsins gerðu ráð fyrir að kosningin væri bindandi í efstu tvö sætin en leiðbeinandi fyrir næstu fjögur. Einnig voru skilyrði um að jafnt kynjahlutfall þyrfti að vera í fjórum efstu sætunum. Óskar Bergsson, sem sóttist eftir fyrsta sæti á listanum ásamt Önnu og Birni Inga Hrafnssyni en endaði í því þriðja, sagðist í morgun ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort hann taki sæti á listanum en muni væntanlega gera það fyrir helgi. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar eru nú tveir kostir í stöðunni: Annars vegar að atkvæðin sem Anna fékk í prófkjörinu verði þurrkuð út og hinir frambjóðendurnir færist þá allir upp um eitt sæti á listanum. Sú hugmynd er uppi að Gestur Kr. Gestsson, sem varð í áttunda sæti í prófkjörinu, verði þá tilnefndur í fimmta sætið, væntanlega til að jafna kynjahlutföllin því annars myndu konur sitja í fjórum af sex efstu sætunum. Hinn möguleikinn er að uppstillingarnefnd tilnefni einhvern í annað sætið. Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, sagði í morgun að nefndin hafi ekki verið skipuð en nefndarskipanin muni liggja fyrir áður en langt um líður.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira