Lífið

Opið í Kerlingarfjöllum

Nú um helgina opnaði útivistar- og göngusvæðið formlega fyrir sumarumferð. Gistipantanir fyrir sumarið 2006 eru nú þegar hátt á fjórða þúsundið ásamt því að 800 hestar koma við í fjöllunum í sumar. Kjalvegur er nýheflaður og með besta móti. Fært er í Kerlingarfjöll á öllum bílum - bæði stórum og smáum. Staðarhaldari í sumar verður sagnfræðingurinn Þóra Fjeldsteð

Eftir að skíðaiðkun var lögð af í Kerlingarfjöllum árið 2002 og öll áhersla lögð á að byggja upp útivistar- og göngusvæði hefur aðsókn almennra ferðalanga farið stigvaxandi. Í Kerlingarfjöllum er nú að finna fjölmargar merktar og ómerktar gönguleiðir og næsta víst að þar finna allir eitthvað við sitt hæfi. Hestamenn á ferð norður og suður Kjalveg leggja nú flestir leið sína í Kerlingarfjöll. Útsýni af toppunum í Kerlingarfjöllum er með því mesta sem gerist á Íslandi og í góðu veðri er hægt að sjá bæði norður og suður fyrir land.

Til marks um auknar vinsældir svæðisins þá hefur Hópferðamiðstöðin ákveðið að koma við í Kerlingarfjöllum daglegum ferðum sínum bæði norður og suður Kjöl. Ennfremur hefur Ferðafélag Íslands ákveðið að setja saman 3 hópferðir með leiðsögumönnum í fjöllin í sumar.

Allar nánari upplýsingar er að finna á vefnum www.kerlingarfjoll.is

 

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.