Innlent

Framlegð í sjávarútvegi aukist

MYND/Jón Sigurður

Framlegð í sjávarútvegi hefur aukist áberandi meira en í öðrum greinum síðastliðna sex mánuði og horfur til næstu sex mánaða eru einnig bestar í sjávarútvegi, samkvæmt ársfjórðungslegri könnun, sem Gallup gerir í samvinnu við Samtök atvinnulífsins.

Þetta er fyrst og fremst rakið til gengislækkunar krónunnar, sem þýðir að mun fleiri krónur fást nú fyrir afurðirnar heldur en á hágengistímabilinu. Horfur til næstu sex mánaða eru líka góðar í iðnaði, samgöngum og ferðaþjónustu, sem líka má rekja til gengisþróunar, en almennt telja stjórnendur þó lægð framundan í efnahagslífinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×