Komið til móts við fækkun rýma á Sólvangi 13. febrúar 2006 22:16 MYND/Heiða
Tíu dvalarrýmum á Hrafnistu í Hafnarfirði verður breytt í hjúkrunarrými til að koma til móts við fækkun rýma á hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Þetta er meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi í dag þar sem kynntar voru tillögur nefndar um uppbyggingu öldrunarþjónustu í Hafnarfirði. Nefndin kynnti skýrslu sína og tillögur að úrbótum í Hafnarborg í dag. Tillögunum, sem beinast jöfnum höndum að bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði og heilbrigðisyfirvöldum, er skipt í fimm flokka . Í fyrsta lagi er um að ræða aðgerðir vegna fækkunar rýma á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, í annan stað tillögur sem snúa að uppbyggingu þjónustu til að styðja sjálfstæða búsetu aldraðra, og í þriðja lagi þær sem snerta sérhæfða sjúkrahús- og stofnanaþjónustu. Þá leggur nefndin fram tillögur varðandi miðstöð öldrunarþjónustu í Hafnarfirði, auk þess sem kynnt voru drög að undirbúningi byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Síðastliðið haust skapaðist töluverð umræða um það þrönga rými sem þeir sem dvelja á Sólvangi þurfa að búa við. Að mati nefndarinnar, að teknu tilliti til álits sérfræðinga myndu enn frekari endurbætur á núverandi húsakynnum Sólvangs verða mjög kostnaðarsamar og vart framkvæmanlegar miðað við nútímakröfur og skilyrði laga um hjúkrunarheimili. Meðal þess sem nefndin leggur til er að samið verði við Hrafnistu um tímabundinn forgang að þeim fimm rýmum á Vífilsstöðum sem Hrafnista hefur til ráðstöfunar og að samið verði um að breyta tíu dvalarrýmum á Hrafnistu í hjúkrunarrými. Að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra hefur nú þegar verið samið um þetta. Hvað varðar uppbyggingu þjónustu til að styðja sjálfstæða búsetu aldraðra er meðal annars lagt til að samþætta heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu, að heimahjúkrun verði tryggð allan sólarhringinn og að dagvistarrýmum verði fjölgað. Þá leggur nefndin til að hafinn verði sem fyrst undirbúningur við skipulag og hönnun nýs hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði með litlum einingum, sem hver um sig á að rúma sex til tíu litlar íbúðir, þar sem áhersla sé lögð á sjálfræði og sjálfstæði fólks. Að sögn heilbrigðisráðherra er óvíst hversu mikið slíkt hjúkrunarheimili myndi kosta, en það, ásamt möguleikunum á að hrinda öðrum tillögum nefndarinnar í framkvæmd, verði skoðað í nánustu framtíð.
Fréttir Innlent Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Fleiri fréttir Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent