Þakið rifið af stúku Laugardalsvallar 13. febrúar 2006 20:30 Mikið gekk á þegar fyrsti flekinn var fjarlægður og trégrindur í þakinu hrundu niður í stúkuna. MYND/KSÍ-Jóhann G. Kristinsson
Sjö tonn af stáli og timbri svifu um loftið í Laugardalnum um kvöldmatarleytið þegar starfsmenn Ístaks voru á fullu við að rífa þakið á gömlu stúkunni á Laugardalsvelli. Framkvæmdir við stækkun gömlu stúkunnar á Laugardalsvelli eru í fullum gangi og í dag var tekið til við að rífa þakið af henni. Stúkan er áttatíu metrar á lengd og ekki hlaupið að því að rífa þakið af henni. Það er skorið í sex metra breiða fleka sem hver um sig vegur rúmlega sjö tonn. Og það er ekki hlaupið að því að búta þakið niður og fjarlægja flekana. Tveir voru teknir niður í dag og vinna við að losa þann síðari hófst laust fyrir klukkan þrjú. Vírar voru festir í þakið og starfsmenn unnu í þrjár klukkustundir við að logsjóða málmbita í þakinu sundur áður en hægt var að lyfta því og setja til hliðar. Stjórnandi verksins gerir ráð fyrir að það geti tekið tvær vikur að fjarlægja allt þakið, en það fer eftir veðri og hvernig verkið gengur. En hvað finnst vallarstjóranum um að sjá þakið hverfa? "Ég veit að það kemur svo gott í staðinn að það er enginn söknuður," segir Jóhann G. Kristinsson vallarstjóri. Hann segir þak gömlu stúkunnar hafa valdið sér áhyggjum um margra ára skeið þar sem vírnet sem var sett í þak stúkunnar þegar hún var byggt hafi verið farið að hrynja niður og því hefði hann óttast að það lenti á fólki ef það félli á kappleikjum. Upphaflega var vírnetið sett í þakið til að varna því að fuglar gerðu sér hreiður í þakinu. Jóhann segir nýju stúkuna gjörbylta vellinum, hvort tveggja fyrir stuðningsmenn sem fengju betri sæti og betri salernisaðstöðu og fyrir sambandið sem væri betur í stakk búið að taka á móti fólki og kæmi meðal annars upp svokölluðum VIP-boxum, eða aðstöðu fyrir þá stuðningsmenn landsliðsins sem væru reiðubúnir að greiða þeim mun meira fyrir aðgang á völlinn.
Fréttir Innlent Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sjá meira