Meirihlut kjósenda Samfylkingar vill aðildarviðræður við ESB 23. mars 2006 13:15 MYND/AP
Mikill meirihluti kjósenda Samfylkingarinnar vill að teknar verði upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. Athygli vekur að ríflega þriðjungur kjósenda Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna er sama sinnis og aðeins um helmingur kjósenda Vinstri grænna er mótfallinn aðildarviðræðum. Í könnun sem Gallup gerði fyrir Samtök Iðnaðarins dagana 21. febrúar til 3. mars, kemur fram að um 41% landsmanna eru hlynt aðild að Evrópusambandinu, heldur færri en fyrri kannanir hafa sýnt. Þegar afstaða fólks til Evrópusambandsins er hins vegar skoðuð eftir stuðningi fólks við stjórnmálaflokka, kemur í ljós að kjósendur Samfylkingarinnar eru jákvæðastir út í Evrópusambandið. Þegar spurt er um hug fólks til aðildarviðræðna, segjast 72% samfylkingarfólks hlynt viðræðum og helmingur framsóknarmanna styður aðildarviðræður. Athygli vekur hins vegar að 39% sjálfstæðismanna og rúm 35% kjósenda vinstri grænna styðja aðildarviðræður en báðir flokkarnir eru andvígir aðild að Evrópusambandinu. Þegar spurt er beint um stuðning fólks við aðild að sambandinu, minnkar stuðningur kjósenda Samfylkingarinnar niður í 61% og framsóknarkjósenda í 44%. Enn styður samt um þriðjungur kjósenda Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna aðild að Evrópusambandinu. Gallup kannaði einnig hug fólks til upptöku evrunnar sem gjaldmiðils. Samfylkingarkjósendur eru því hlyntastir. 60% þeirra vill taka upp evruna. Ríflega 40% framsóknarmanna styðja að evran verði gjaldmiðill á Íslandi í stað krónunnar, tæp 39% kjósenda Sjálfstæðisflokksins eru þeirrar skoðunar og um 28% kjósenda Vinstri grænna. Þegar andstaða þessara stjórnmálaflokka við aðildarviðræður, beina aðild eða upptöku evrunnar eru skoðuð, kemur í ljós að andstæðingar eru eingöngu í meirihluta í kjósendahópi vinstri grænna, en um 54% þeirra eru andvíg beinni aðild og upptöku evrunnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Innlent Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Innlent Fleiri fréttir Lýst eftir Kaspari Sólveigarsyni Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Sjá meira