Steinunn Sigurðardóttir sýnir á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn 1. júní 2006 14:00
Laugardaginn 10. júní kl. 16.00 verður opnuð sýninga á verkum Steinunnar Sigurðardóttur fatahönnuðar á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn. Sýningin spannar tuttugu ára feril Steinunnar sem fatahönnuður og var sýningin áður í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi frá 18. mars - 30. apríl 2006 og í tengslum við Sjónþing Gerðubergs. Á yfirlitssýningu Steinunnar á Norðurbryggju verða sýnishorn af þeim flíkum sem hún hefur hannað í gegnum árin og á tólf sjónvarpsskjám verða myndbönd frá tískusýningum, vinnunni baksviðs, viðtöl o.fl. Steinunn hefur haldið sérstaklega vel utan um vinnu sína og hefur með skipulögðum hætti allt frá skólaárunum safnað myndum úr blöðum, myndböndum, vinnuskissum, efnisprufum og fleira sem bera vitni um framlag hennar í gegnum tíðina. Á sýningunni gefur að líta efnis- og prjónaprufur, skissur og fleira. Einnig verða veggir þaktir með úrklippum úr tískublöðum með myndum af frægustu fyrirsætum og leikurum heims í fötum Steinunnar. Síðast en ekki síst sýnishorn af nýjustu tískulínu Steinunnar; á gínum og á stórum ljósmyndum á blindrömmum. Sýningin í Gerðubergi vakti verðskuldaða athygli og opnaði augu margra fyrir hörðum heimi tískunnar sem flestum er hulinn. Nafn Steinunnar hefur ekki verið áberandi og er lítt þekkt meðal almennings á Íslandi þó svo að þeir sem fylgjast grannt með í þessum geira þekki verk hennar og feril vel. Hún var á dögunum tilnefnd til Sjónlistarorðunnar 2006 og vann DV verðlaunin í flokki hönnunar árið 2003 svo fátt eitt sé nefnt. Steinunn byrjaði ung að prjóna og sauma og nam hönnum við Parsons School of Design í New York. Hún var fyrsti Íslendingurinn til að stunda þar nám og vissi í byrjun lítið um fataiðnaðinn og borgina sjálfa en á endanum dvaldi Steinunn í 13 ár í New York. Að námi loknu vann Steinunn með fremstu fatahönnuðum heims; Gucci, Ralph Lauren, Calvin Klein og La Perla. Hennar helsti styrkleiki voru prjónaflíkur og kaðlar og þótti færni hennar á því sviði framúrskarandi. Hún vann oftast efnin frá grunni og bjó til ný efni sem aldrei höfðu sést áður. Steinunn vann sem yfirhönnuður hjá La Perla og eftir tveggja ára starf hjá fyrirtækinu ákvað hún að snúa sér að eigin hönnun undir nafninu STEINUNN. Steinunn er með vinnustofu á Laugarvegi 59 og selur flíkurnar til Evrópu, Japans og Bandaríkjanna. Sjá nánar http://www.steinunn.com/ Í tengslum við sýninguna opnaði vefsíða hjá Símanum www.siminn.is/steinunn þar sem hægt var að sjá myndbönd frá tískusýningum, ljósmyndir af hönnun Steinunnar og feril og verkefnum Steinunnar á löngum ferli hennar sem fatahönnuður. Vefsíðan opnað 18. mars 2006. Sýningin á Norðurbryggju stendur til 9. júlí.
Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira