Stefnt að mikilli uppbyggingu umhverfis Hlemm 24. janúar 2006 23:45
Íbúum á svæðum umhverfis Hlemm gæti fjölgað um allt að þrjú þúsund á næstu árum ef nýtt deiliskipulag verður að veruleika. Fyrstu reitirnir koma að öllum líkindum til uppbyggingar strax á þessu ári. Skipulagsyfirvöld í Reykjavík kynntu í dag tillögur að nýju skipulagi á svæðinu á opnum fundi á Kjarvalsstöðum. Svæðið hefur verið kallað Hlemmur plús og samanstendur af sex reitum umhverfis þessa aðalstöð strætósamgangna. Svæðið nær frá Snorrabraut og Barónsreit í vestri og yfir í Borgartún og til Miklatúns í austri og suðri. Í tillögunum er gert ráð fyrir að töluvert af húsum verði rifið og ný byggð í staðinn en vinna að reitunum er mislangt komin. Tillaga að deiliskipulagi á reit sem afmarkast af Einholti og Þverholti er nú þegar í auglýsingu hjá Borgarskipulagi en að því loknu, eða í seinni hluta febrúar, mun koma í ljós hvort hún verði samþykkt. Gert er ráð fyrir að íbúðir á svæðinu geti orðið yfir þúsund með andlitslyftingu þess. Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs borgarinnar, segir markmiðið að uppbyggingin verði að veruleika og stuðli að því að svæðið verði skemmtilegra og kraftmeira. Það verði akkeri á þessum stað í miðborginni á móti tónlistar- og ráðstefnuhúsinu niður við Reykjavíkurhöfn. Dagur vonast eftir að uppbyggingin verði hröð. Hann segir að fyrstu reitirnir komi til uppbyggingar þegar á þessu ári. Á næstu fimm árum eigi hann svo von á mikilli andlitslyftingu á svæðinu og að það færist í flokk með mest spennandi svæðum borgarinnar. Það taki einhver ár og framkvæmdatíminn geti reynt á. Fundurinn í dag hafi verið haldinn til að fá sjónarmið íbúa á svæðinu og athugasemdir þeirra og svo verði reynt að vinna eins hratt úr málinu og kostur er.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Fleiri fréttir „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Sjá meira