Framsóknarflokkurinn lagður í einelti 29. maí 2006 14:35 Kópavogur MYND/GVA
Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn hafa náð samkomulagi um áframhaldandi samstarf í bæjarstjórn Kópavogs. Oddviti Framsóknarflokksins segir flokkinn hafa orðið fyrir einelti en hann segir forystu flokksins bera ákveðna ábyrgð á slöku gengi og býður spenntur eftir að sjá hvernig hún ætlar að axla þá ábyrgð. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Kópavogi hélt velli í sveitarstjórnakosningunum á laugardaginn. Framsóknarflokkurinn tapaði þó tveimur mönnum og hefur nú aðeins einn mann en Sjálfstæðisflokkurinn fékk fimm menn kjörna. Flokkarnir hafa náð samkomulagi um að halda meirihlutasamstarfi sínu áfram og verður málefnasamningur lagður fyrir fulltrúaráð flokkanna á miðvikudag. Gunnar Birgisson verður bæjarstjóri og Ómar Stefánsson, eini framsóknarmaðurinn í bæjarstjórn verður forseti bæjarráðs. Ómar segir að þrátt fyrir að gengi Framsóknarflokksins í Kópavogi hafi verið slakt hafi þeir ekki talið tímabært að slíta samstarfinu. Þeir hafi metið það sem svo að bæjarbúar hafi ekki verið að hafna meirihlutanum. Hann segir þó ljóst að framsóknarmenn verði að skerpa sig og sýna að þær framfarir sem orðið hafa í bænum séu líka þeirra verk. Ómar telur að vissu leyti sé verið að refsa sveitarstjórnamönnum fyrir verk ríkisstjórnarinnar í þessum kosningum. Það hafi verið þungt undir fæti að koma þeirra verkum að í kosningunum. Þeir hafi fundið að kjósendur vildu helst ræða mál sem snéru að ríkisstjórninni frekar en sveitarstjórnarmál. Ómar segir forystuna hafa sagt að hún axli ákveðna ábyrgð og hann býði spenntur eftir því hvernig þeir tækla það. Hann segist ekki kunna miklar skýringar á því afhverju fylgi Framsóknarflokksins sé að dala á landinu öllu. Þetta sé ákveðinn dómur á stjórnmálin á landsvísu en auk þess sé flokkurinn að verða fyrir einelti og áreiti. Það sjáist glöggt á kosningabaráttu Vinstri-grænna, sem sé barnaleg. Þeir hafi dreift barmerkum sem á stendur aldrei kaus ég Framsókn og það sé ekkert annað en einelti.
Fréttir Innlent Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira