Þurfum að draga úr þorskveiðum 3. júní 2006 17:13
Hafrannsóknastofnun lagði til í dag að þorskkvóti fyrir næsta fiskveiðiár verði 11 þúsund tonnum minni en nú í ár, eða 187 þúsund tonn. Aflahlutfallið þarf að skerðast enn frekar til að byggja upp hrygningarstofninn, að mati Hafró. Í skýrslu Hafrannsóknarstofnunar sem kynnt var í dag kemur fram að ástand þorskstofnsins er undir langtímameðaltali, nýliðun, hrygningarstofn og veiðistofn. Þó ekki sé fyrirséð hrun, þá þrýstir Hafrannsóknarstofnun á stjórnvöld að endurskoða aflaregluna og lækka aflahlutfallið. Sjórinn í kringum okkur hefur verið hlýr undanfarið og það hefur ýmis góð tíðindi í för með sér. Ýsustofninn er stór, þó að stærð fisksins sé undir meðallagi. Ufsastofninn stendur einnig vel og er í vexti. Sumargotssíldin hefur verið skynsamlega nýtt og stofninn stendur vel. Skötuselurinn er að breiðast hratt út um Íslandsmið í kjölfar hlýnandi sjávar og kolmunninn gengur nú meira inn í íslenska lögsögu. Hins vegar eru rækjustofnar eru með slakasta móti. Grálúðustofninn stendur afar illa og er lagt til að ekkert verði veitt úr honum. Úthafskarfastofninn er veikur og er lagt til að hann verði friðaður um sinn. Loðnan hefur varla fundist til rannsókna eða veiða og er því lítið vitað um ástand loðnustofnsins.
Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira