Syndafall í stiganum 3. júní 2006 10:45 Flottur veggur Tvíeykið Mundi og Morri við vegginn góða á Barnum sem sýnir Evu þar sem hún er að láta freistast af eplinu. MYND/GVA
Nýjasti bar bæjarins, Barinn við Laugaveg 22, skartar skemmtilegum veggskreytingum sem vakið hafa ómælda eftirtekt gesta. Listamennirnir sem heiðurinn eiga af verkunum heita Guðmundur Hallgrímsson og Friðrik Svanur Sigurðarson, betur þekktir sem Mundi og Morri, en þeir nema báðir grafískra hönnun við Listaháskóla Íslands. Verkin sem um ræðir eru þrjú. Eitt er í stigaganginum sem liggur upp á þriðju hæðina og sýnir það konu horfa girndaraugum á epli á meðan hárið á henni flaksast upp allan vegginn. Myndin er af Evu í aldingarðinum og sýnir syndafallið. Okkur fannst þessi saga mjög viðeigandi sem þema í veggskreytingu á skemmtistað þar sem margar syndir eiga líklega eftir að verða framdar hér inni, segir Morri. Hinar tvær myndirnar eru á miðhæðinni og eru einnig trúartengdar. Önnur þeirra sýnir prest sem er að biðjast fyrir og hin sýnir slökkvuliðsmann sem er að kljást við loga helvítis. Við erum samt hvorugir sérstaklega trúaðir,ítrekar Mundi og segir að myndin af syndafallinu hafi verið útpæld og mikil vinna lögð í hana á meðan hinar myndirnar tvær hafi verið unnar meira spontant og án fyrirfram gefinni útkomu. Klósettin á þriðju hæðinni hafa einnig verið skreytt en verkin þar inni eru eftir bandaríkjamann að nafni Skyler. Þannig er kvennaklósettið alsett hundum á meðan strákarnir horfa á bát sökkva og þungbrýndar verur þegar þeir pissa. Mundi og Morri hafa annars komið víða við þegar listin er annarsvegar. Morri á t.d. heiðurinn af veggskreytingunum í bakgarði Dillon og Mundi er á kafi í fatahönnun og hannaði m.a. skreytinguna á metanstrætisvögnunum sem keyra um götur borgarinnar. Meiri samvinna er á döfinni hjá strákunum því framundan er sýning á sextán verkum þar sem klámmyndir og ástarsögur koma mikið við sögu en sýningin verður að öllum líkindum fljótlega sett upp í versluninni Kronkron. Gaman er líka að segja frá því að strákarnri hafa nú þegar fengið tilboð um fleiri vegggskreytingar í kjölfar verkanna á Barnum.
Menning Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Risastór tappakollur í fallegri íbúð Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Fleiri fréttir Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Sjá meira