Akureyringar vilja Hagkaup í stað knattspyrnuvallar 20. janúar 2006 22:03 Frá Akureyri Mynd/Kristján J. Kristjánsson
Drjúgur meirihluti Akureyringa vill leggja niður Akureyrarvöll, aðal knattspyrnuvöll bæjarins. Ríflega helmingi bæjarbúa líst vel á að þar rísi Hagkaupsverslun og þorri þeirra vill að hluti svæðisins fari undir almenningsgarð. Forsvarsmenn Hagkaups hafa um hríð sóst eftir að fá byggingalóð við aðalknattspyrnuvöllinn á Akureyri undir nýja Hagkaupsverslun. Bæjaryfirvöld hafa ekki tekið endanlega afstöðu en í dag kynntu forsvarsmenn Þyrpingar, þróunarfélag Stoða og Baugs Group, viðhorfskönnun sem gefur vísbendingu um afstöðu bæjarbúa til málsins. Megin niðurstaða könnunarinnar er að meiri hluti Akureyringa 59% er tilbúinn að breyta notkun íþróttavallarsvæðisins. Einungis 26% vilja halda vellinum í óbreyttri mynd. Tæplega 55% svarenda eru andvígir nýrri íbúðabyggð á svæðinu en ríflega 35% eru hlynntir því. Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus er ánægður er með niðurstöðurnar. Hann segir að í viðhorfskönnuninni komi fram að meirihluti íbúanna vilji að völlurinn verði aflagður og þarna verði útivistarsvæði, leiktæki og einnig pláss fyrir góða verslun frá Hagkaupum. Samkvæmt nýju miðbæjarskipulagi sem unnið er að er gert ráð fyrir að stórmarkaður rísi í miðbæ Akureyrar. Að hálfu bæjaryfirvalda hafa tveir staðir helst komið til greina, svokallaður Sjallareitur og Glerárgötureitur. Hagkaupsmenn eru meira en tilbúnir til að byggja nýja verslun í miðbænum en líst illa á báða kostina sem þeim er boðið upp á, ekki síst vegna þess að báðir kalla þeir á bílageymsluhús neðanjarðar. Benda þeir á að Íslendingar eru illfáanlegir til að nýta slík hús auk þess sem ferðafólk með fellihýsi yrði frá að hverfa. Fyrr í vikunni kynntu stuðningsmenn íþróttafélagsins Þórs umfangsmiklar uppbyggingartillögur á sínu svæði. Einn hornsteinn þeirra tillagna er að Akureyrarvöllur verði aflagður en hanga hugmyndir Þórsara við hugmyndir Þyrpingar og Hagkaups? Jóhannes segir að hugmyndirnar hangi ekki saman en þær komi á mjög góðum tíma. Hægt er að sjá fréttina í heild sinni á VefTíVí Vísis.
Fréttir Innlent Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira