Kríuvarp misferst annað árið í röð 19. júní 2006 07:00 Magnús Jónsson frá Flatey Magnús hafði áður áhyggjur af því að kríuvarpið yrði senn komið upp að húsi hjá sér en nú hefur henni fækkað svo að hann heyrir varla í henni. MYND/Hörður
Kríuvarp, sem stundum hefur hafist um miðjan maí eða að minnsta kosti í júníbyrjun, er enn varla hafið á Suður- og Vesturlandi að sögn Kristins Hauks Skarphéðinssonar fuglafræðings. Undir þetta tekur Magnús Jónsson íbúi í Flatey. "Í fyrra komust örfáir kríuungar upp en svo drápust þeir flestir úr ætisleysi," segir Magnús. "Útlitið er mjög svipað nú. Fuglafræðingur sem er hérna á ferðinni hefur aðeins séð örfá kríuegg en þetta ætti allt að vera komið á fullt á þessum tíma. Einnig hefur kríunni stórfækkað. Fyrir nokkrum árum hélt ég að kríuvarpið kæmi upp að húsi hjá okkur en nú er það varla að maður heyri í henni." Kristinn Haukur segir að hugsanlega sé um að kenna skorti á síli sem gerir það að verkum að fuglinn hafi ekki æti nálægt varpstöðvum. Auk kríunnar hefur þetta ástand alvarlegar afleiðingar fyrir ritu, lunda og fjölda annarra fuglategunda. Hann segir þó að þessir fuglar hverfi varla af landinu en vissulega sé útlit fyrir verulega fækkun ef þetta ástand haldi áfram. "Það er þó enn möguleiki að krían nái að verpa þó vissulega sé þetta orðið nokkuð seint," segir hann. Magnús segir að í fyrstu eggjatökum hafi hann oft tekið um 1500 rituegg en að þessu sinni aðeins um 100 þar sem svo lítið hafi verið af þeim. "Svo erum við alveg hættir að sjá fuglinn stinga sér í torfur líkt og við sáum svo oft fyrir nokkrum árum," segir hann. Síðasta sumar lýstu hrefnuveiðimenn áhyggjum sínum vegna þess að holdafar hrefnunnar benti til þess að ekki væri nóg æti fyrir hana á miðum og kenna þeir sílisskorti um.
Innlent Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Fleiri fréttir Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Sjá meira