Lífið

Skelfileg fjölskylda

Engin hjónabandssæla finnst hjá Al og Peggy Bundy sem gera allt til þess að fara í taugarnar hvort á öðru og klúðra uppeldi barna sinna en hvítt rusl hefur sjaldan verið jafn fyndið í sjónvarpi.
Engin hjónabandssæla finnst hjá Al og Peggy Bundy sem gera allt til þess að fara í taugarnar hvort á öðru og klúðra uppeldi barna sinna en hvítt rusl hefur sjaldan verið jafn fyndið í sjónvarpi.

Gamanþættirnir Married With Children komu fyrst fyrir sjónir bandarískra sjónvarpsáhorfenda árið 1987, náðu umtalsverðum vinsældum og gengu í tíu ár til ársins 1997.

Fyrsti árgangur þáttanna er kominn út á DVD á Íslandi og sú útgáfa er löngu tímabær en þættirnir voru á sínum tíma sýndir hér á landi í árdaga Stövar 2 og væntanlega eru margir til í að endurnýja kynnin við skósalann vonlausa Al Bundy og kolruglaða fjölskyldu hans.

Þættirnir þóttu frekar ósmekklegir og fjölskyldugrínið fór í fínustu taugar viðkvæmra sála. Al sjálfur var grunnhygginn bjórsvelgur, hálfgerður forveri Hómers Simpson. Peggy, eiginkona hans, var hyskin gála, sonurinn andlega krepptur og unglingsdóttirin lauslætisdrós. Kjafturinn á öllum persónum og lífsviðhorf þeirra þóttu svo oftast fyrir neðan allar hellur en allt gekk þetta upp, þættirnir slógu í gegn og héldust ferskir árum saman en útvötnuðust þó fyrir rest.

Ed O’Neill fór á kostum í hlutverki Als en hann hefur meðal annars sýnt frábæra takta sem Amos lögregluforingi í The Adventures of Ford Fairlaine, lék lögguna Joe Friday í nýrri Dragnet þáttaröð frá 2003 til 2004 og hefur dúkkað upp í nokkrum Vesturálmu þáttum.

Christina Applegate lék dótturina stjórnlausu, Kelly, en hún er enn í fullu fjöri og átti til dæmis góðan sprett í Anchorman: The Legend of Ron Burgundy árið 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.