Matarmenning og ferðamennska 29. nóvember 2006 15:00 Vilja menn eta skó sína eða svona krásir? Fundað verður um íslenska matarmenningu fyrr og nú á morgun.
Félagið Matur-saga-menning gengst fyrir fyrirlestraröð um íslenskan mat og matarhefðir að Grandagarði 8 í Reykjavík. Umfjöllunarefni næsta fundar verður matur og ferðamennska, en yfirskrift fundarins er „Að éta skóna sína… íslenskur matur á borðum erlendra ferðamanna fyrr og síð“. Matarmenning og þjóðleg matarhefð hefur verið fremur vanmetinn þáttur í íslenskri ferðamennsku, og svo mikið er víst að enn er stunið undan óskilgreindum skyndimat á áningarstöðum ferðamanna. Augu landsmanna eru þó smám saman að opnast fyrir tilverurétti og ágæti íslensks matar, ekki síst fyrir ferðamenn, sem sækjast eftir sérkennum og nýjum upplifunum á framandi slóðum. Þá er ekki endilega verið að hvetja til þess að bera rammíslenskan, fornan mat sem hefur verið etinn hér um aldir, fyrir erlenda ferðamenn, heldur ekki síður að þróa girnilega rétti sem falla að smekk nútímamanna en bera sterk íslensk eða héraðsbundin einkenni. Þar hafa nokkrir frumkvöðlar þegar lagt lóð á vogarskálarnar, meðal annars. annar fyrirlesari kvöldins, Laufey Haraldsdóttir, sem kemur frá Ferðamáladeild Hólaskóla í Hjaltadal. Sumarliði Ísleifsson, sagnfræðingur við Reykjavíkurakademíuna, ríður þó á vaðið annað kvöld og fjallar um lýsingar á íslenskum mat og drykk í erlendum heimildum frá fyrri öldum. Þar sýnir Sumarliði ýmis dæmi um erlenda texta þar sem greint er frá matarmenningu og drykkjusiðum Íslendinga á fyrri öldum og upplifun og lýsingum útlendinga á þeirri reynslu að vera í fæði á Íslandi. Eins mun hann ræða hvernig erlendir ferðamenn sem komu til Íslands fyrir aldamótin 1900 sáu fyrir mat sínum og smekk þeirra fyrir innlendum krásum. Þessar gömlu heimildir gefa okkur veganesti til framtíðarinnar og hugmyndir til nýrrar þróunar í ferðamennskunni, en í erindi Laufeyjar Haraldsdóttur verður einmitt litið nær í tíma þar sem hún kynnir niðurstöður kannana á viðhorfum erlendra ferðamanna til matarins og áhuga þeirra á íslenskri matarhefð. Eins segir hún frá verkefninu „Matarkistan Skagafjörður“, sem er einmitt dæmi um hvernig nýta má auðlegð og menningu einstakra héraða í svæðisbundinni ferðamennsku. Að loknum erindum verður tími fyrir umræður, fyrirspurnir og spjall í bland við veitingar við hæfi. Dagskráin hefst kl. 20 annað kvöld og er öllum opin meðan húsrúm leyfir.
Menning Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Áskorun Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið Fleiri fréttir Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sjá meira