Lífið

Krókódílar og antílópur á jólamatseðlinum

Matreiðslumaðurinn og súkkulaðið
Matreiðslumaðurinn og súkkulaðið

„Jú, jú, maður er náttúrlega kolruglaður,“ segir Gunnar Garðarsson, matreiðslumaður á Café Bifröst, en hann hyggst brydda upp á skemmtilegum nýjungum á matseðlinum um jólin. Þar verður meðal annars að finna krókódílakjöt í engifer og kanil auk antílópu, matvæla sem Íslendingar eru kannski ekki vanir að sjá borin á borð fyrir sig heldur sjá kannski meira fyrir sér í nátttúrulífsþáttum eða notuð í kúrekastígvél og annan leðurfatnað. „Ég vann mikið með þetta hráefni þegar ég vann sem yfirkokkur á Hótel Lego í Danmörku en þar var krókódíllinn mjög vinsæll milliréttur,“ útskýrir Gunnar sem segist þó skilja það vel ef gestir veitingastaðarins reki upp stór augu þegar þeir sjái þessar framandi dýrategundir reiddar fram. „Krókódíllinn er hins vegar ekkert öðruvísi en annar matur,“ bætir matreiðslumaðurinn við. „Svo fannst mér líka bara tímabært að kynna eitthvað algjörlega nýtt.“

 

Eingöngu seldir í Legolandi Súkkulaðikubbarnir frægu sem fást eingöngu í hinum vinsæla skemmtigarði.

Það er heildverslunin GV sem flytur kjötið inn en Gunnar segir það langt frá því auðvelt að fá þetta til sín. „Kjötið þarf að fara í gegnum mjög strangt dæmi,“ segir Gunnar. „Maður verður auðvitað að nýta það sem birgjarnir hafa upp á að bjóða,“ bætir kokkurinn við og hlær.

Gunnar gerir þó fleira heldur en að elda framandi kjötvörur því hann á Chokolart-súkkulaðiverksmiðjuna í Danmörku. „Við framleiðum meðal annars súkkulaðikubba fyrir Lego sem eru aðeins seldir í Lego-landi,“ segir Gunnar en auk þess gera þeir hálfar golfkúlur úr súkkulaðinu. Gunnar er því réttnefndur þúsundþjalasmiður því milli þess að halda veitingasölunni gangandi á Bifröst og kynna súkkulaðið sitt, er hann þjálfari hjá sundfélaginu í Borgarnesi og var nýkominn af æfingu þegar Fréttablaðið hafði uppi á honum. „Ég hef í nógu að snúast. Þegar maður fer í sjö til þrjú-vinnu verður maður að hafa eitthvað fyrir stafni,“ segir Gunnar og hlær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.