Lífið

Allt að verða klárt fyrir Cruise og Holmes

Undirbúningurinn fyrir brúðkaup Toms Cruise og Katie Holmes heldur áfram en Ítalir ráða sér vart fyrir kæti yfir því að stjörnuparið skyldi velja landið þeirra eftir allt fjaðrafokið í kringum hugsanlegt brúðkaup Angelinu Jolie og Brad Pitt við Como-vatnið.

Íslandsvinirnir í Ekstrablaðinu danska greina frá því í netútgáfu sinni að Katie Holmes hafi farið í smá verslunarleiðangur í Hollywood á þriðjudaginn og keypt sér æsandi undirföt, náttföt handa sér og manni sínum, Tom Cruise, auk nokkurra efnislítilla nærbuxna fyrir brúðkaupið en talið er að kostnaðurinn við þessi „náttfatakaup" hafi hlaupið á hundruðum þúsunda. Á vefsíðunni MSNBC er síðan haft eftir starfsmanni verslunarinnar La Bra Lingerie, þar sem Holmes er sögð hafa verslað, að nærfötin hafi alls ekki verið „jómfrúarleg". „Enda varla við hæfi þegar hún er einu sinni orðin móðir," sagði starfsmaðurinn.

Nærvera Toms Cruise hefur hleypt öllu í bál og brand í miðborg Rómar en leikarinn undirbýr nú brúðkaupið við Braccaiano-vatnið af kappi ásamt móður sinni. Fjöldi æstra aðdáenda vakir og sefur fyrir framan Hassler-hótelið, þar sem Cruise er sagður dveljast, í veikri von um að sjá leikarann smávaxna en öryggisverðir og lögregla varna öllum sem ekki eiga brýnt erindi inn á hótelið inngöngu. Samkvæmt erlendum fréttaveitum er talið líklegt að athöfnin fari fram í gömlum miðaldakastala við vatnið á laugardaginn en kostnaður við brúkaupið er talinn hlaupa á sjö hundruð milljónum íslenskra króna og má reikna með að fjöldi fyrirmenna verði viðstaddur þegar þau Holmes og Cruise ganga í það heilaga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.