Nýr maður mættur til leiks 6. nóvember 2006 12:30 Paul McCartney hefur endurnýjað samband sitt við börnin sín af fyrra hjónabandi sem styðja föður sinn heilshugar á þessum síðustu og verstu tímum.
Bresku blöðin halda áfram umfjöllun sinni um skilnað Pauls McCartney og Heather Mills en málið tekur á sig ýmsar myndir. Nú þykist Daily Mail hafa heimildir fyrir því að Mills sé komin með nýjan mann. Blaðið birti um helgina frétt þess efnis að Heather Mills væri hugsanlega í tygjum við einkaþjálfara sinn, Ben Amigoni, en þau hafa sést æ meira saman eftir að hitna tók í kolunum hjá Mills og McCartney. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem nafn Amigoni ber á góma í umræðunni því 17. október greindi Daily Mail frá því að Paul McCartney hefði boðað einkaþjálfarann á sinn fund þar sem hann ætlaði sér að fá svör við því hvort hann ætti í ástarsambandi við Heather.Hætti með unnustunniStella McCartney Er brjáluð út í stjúpmóður sína fyrrverandi en málið er sagt ógna heilsu ófædds barns hennar.Ben Amigoni gekk til liðs við Heather fyrir þremur árum þegar hún byrjaði að æfa í heilsuræktarstöðinni Hilsden Gym þar sem Amigoni vann. Þegar hún gekkst undir aðgerð á fæti réð Mills hann á staðnum og fékk hann til að sjá um endurhæfinguna. Amigoni, sem er 22 ára, sagði síðan upp unnustu sinni til margra ára til þess að geta farið með hinum nýja skjólstæðingi sínum um allan heim og séð til þess að hún væri í fínu standi.McCartney ákvað að ganga hreint til verks þegar hann og Mills höfðu tilkynnt skilnað sinn og hringdi í Amigoni til að spyrja hvort hann ætti í ástarsambandi við Heather. „Ben fékk símtal og vissi ekkert hvaðan á sig stóð veðrið, trúði því hreinlega ekki að sir Paul hefði áhuga á að tala við hann," sagði heimildarmaður Daily Mail. „Hann fullvissaði McCartney um að ekkert væri í gangi, samband þeirra væri eingöngu faglegt," bætti heimildamaðurinn við.Samkvæmt götublaðinu á McCartney að hafa tekið þessar útskýringar gildar en Daily Mail telur nokkuð ljóst að miklar samverustundir einkaþjálfarans og Mills hljóti að kveikja aftur grunsemdir hjá vinalega Bítlinum, Amigoni hafi ekki vikið frá Mills síðan fjaðrafokið hófst.Börnin styðja McCartneyÞótt skilnaðurinn sé vissulega kominn í hart virðist hann þó hafa einhverjar jákvæðar hliðar. Börn McCartneys hafa verið dugleg við að heimsækja pabba sinn á heimili hans. Samkvæmt mörgum vefsíðum hefur Paul ævinlega þurft að heimsækja börnin sín en þau hafa ekki viljað koma á meðan hann var kvæntur Heather. Samkvæmt einhverjum fréttamiðlum er Heather, stjúpdóttir Paul, farin að láta sjá sig enda hefur nafn móður hennar, Lindu McCartney, verið dregið inn í málaferlin vegna upptaka sem hún gerði skömmu áður en hún lést. „Heather hefur ekki sést í mörg ár og starfsfólki brá heldur betur í brún þegar hún birtist öllum af óvörum." Þá hafa þau Mary og James McCartney einnig verið dugleg við að kíkja inn til pabba síns.Mest hefur hins vegar borið á fatahönnuðinum Stellu McCartney sem á von á barni. Samkvæmt erlendum fréttaveitum er málið sagt ógna meðgöngunni vegna þess hversu mjög fatahönnuðurinn tekur málið inn á sig. Frá því var greint í News of the World fyrir viku að hún vildi helst ganga frá stjúpmóður sinni með berum höndum. Á Stella að hafa sagt við föður sínum að hún vildi ekki koma með barnið inn á heimili þar sem Heather Mills væri.Erfitt fyrir MillsYoko Ono Nafn ekkju Lennons hefur verið nefnt, en Heather Mills hefur verið líkt við listakonuna sem margir telja að hafa eyðilagt samband Bítlanna.Skilnaður McCartneys og Mills hefur vakið upp minningar um annan skilnað sem skók heimsbyggðina, þegar Díana prinsessa sagði skilið við Karl Bretaprins. Mills og McCartney hafa ráðið sér sömu lögfræðinga og málið hefur verið nánast daglega á forsíðum slúðurblaðanna enda hafa ásakanirnar gengið á víxl. Mills hefur átt undir högg að sækja í fjölmiðlaumfjölluninni og hefur mörgum þótt nóg um, hafa bent á að hún sé jafnvel meira fórnarlamb en McCartney.Lögfræðingurinn James Stewart sagði við vefútgáfu USA Today að málið gæti reynst erfitt fyrir Mills og hún hefði jafnvel gert taktísk mistök. „Samkvæmt lögum í Bretlandi er ekki heimilað að skilja nema hægt sé að sýna fram á óæskilega hegðun eða sifjaspell," sagði Stewart í samtali við vefinn og bætti því við að líklegast hefði það verið Paul sem hefði lagt fram beiðni um skilnað á grundvelli fyrrnefnda atriðisins. „Það sem hefði verið auðveldast fyrir Mills var að mótmæla ekki og semja síðan um einhverja upphæð," segir Stewart og bendir á að aðeins eitt prósent af öllum 150 þúsund skilnuðum hafi endað með „sigri" andmælanda. Skilnaðarlögunum í Bretlandi var breytt fyrir sex árum en fram að því var eiginmönnum einungis skylt að greiða það sem talið var að eiginkonan þyrfti til að lifa af og því ljóst að barist verður um háar fjárhæðir í réttarhöldunum sem hefjast á næsta ári.
Menning Mest lesið Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Lífið Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Lífið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Ógleymanleg upplifun á klósetti í norskum kastala Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ Tónlist Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Fleiri fréttir Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Sjá meira