Lífið

Friðgeir keppir í Bocuse d‘Or

Fæddist inn í eldhúsið og vonast eftir verðlaunasæti á Bocuse d‘Or í janúar.
Fæddist inn í eldhúsið og vonast eftir verðlaunasæti á Bocuse d‘Or í janúar. MYND/Brink

Friðgeir Ingi Eiríksson keppir fyrir Íslands hönd í matreiðslukeppninni virtu Bocuse d’Or í Lyon í janúar á næsta ári. Faðir hans er Eiríkur Ingi Friðgeirsson, fyrrverandi yfirkokkur Hótel Holts, og er Friðgeir því nánast fæddur inn í eldhúsið. Hann býr í Frakklandi og vinnur fyrir meistarakokkinn Philippe Girardon, sem er með honum í för á Íslandi til að kynna matseðil hans í keppninni.

Alls 24 kokkar taka þátt í keppninni. Þeir matreiða fiskrétt og kjötrétt og fá til þess fimm tíma. Philippe segir æfingar þeirra Friðgeirs hafa miðast við matreiðslu hingað til, en undirbúningur fyrir keppnina tekur allt að tvö ár. „Nú byrjum við hins vegar að vinna með klukkuna og höfum þrjá mánuði til þess,“ sagði Philippe.

Bocuse d‘Or keppnin verður tuttugu ára í janúar en hún er haldin á tveggja ára fresti. Philippe sagðist ekki sætta sig við annað en verðlaunasæti fyrir Friðgeir í janúar, en Friðgeir kvaðst ekki vera jafn sigurviss. „Ég reyni bara að gera vel og vera ánægður með það. Svo kemur þetta í ljós,“ sagði hann, en engu má ljóstra upp um matseðil Friðgeirs fyrr en að keppni lokinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.