Stjörnurnar styðja Paul 1. nóvember 2006 17:30 Paul McCartney Lýsti því yfir að skilnaðurinn væri mjög erfiður og reyndi mikið á sig en athygli hefur vakið hversu grönn og þreytuleg bæði Mills og Paul eru.
Vinir og kunningjar Pauls McCartney, Heather Mills eða jafnvel Lindu heitinnar McCartney spretta nú upp eins og gorkúlur til að lýsa yfir stuðningi við sinn mann. Carla Lane er nýjasta manneskjan til að tjá sig um hjónaband Pauls og Lindu sem óvænt var dregið fram í dagsljósið þegar Heather Mills lýsti því yfir að Paul hefði lamið hana líka. Allt fór á hvolf í Bretlandi þegar náinn samstarfsmaður Lindu, Peter Cox, kom síðan fram í fjölmiðlum og sagðist hafa undir höndunum upptökur þar sem Linda tjáir sig á opinskáan hátt um hjónaband sitt og Pauls en jafnvel hefur verið talið að þessar upptökur verði dregnar fram í réttarsalnum á næsta ári. Lane sagði í samtali við bresku útvarpsstöðina Radio 4 að hjónaband Pauls og Lindu hefði verið mjög ástríkt og gott. „Ef eitthvað var að kom Linda til mín og sagði mér frá því en hún gaf aldrei neitt í skyn að eitthvað alvarlegt væri að, hún hefði sagt mér frá því,“ sagði Carla en Daily Mirror greinir frá þessu. Skilnaður McCartney og Mills bar einnig á góma á tónlistarhátíð Q-tímaritsins þar sem margar af helstu rokk-og poppstjörnum Bretlands voru samankomnar. Þar lýsti BBC-grínistinn Jonathan Ross því yfir að Mills væri ótrúlegur lygari. „Við eigum sennilega eftir að komast að raun um að hún hefur báða fætur jafnlanga,“ sagði Ross og féll brandarinn í góðan jarðveg hjá vinum McCartneys sem þarna voru en þeirra á meðal voru Oasis-bræðurnir, Bono, The Who og Boy George. Skilnaðurinn snýst ekki lengur bara um peninga heldur einnig að vinna almenning á sitt band og því telja fjölmiðlasérfræðingar nánast öruggt að bæði Mills og McCartney eigi eftir að mæta í einkaviðtöl á borð við þau sem Karl Bretaprins og Díana gerðu á sínum tíma þegar þau skildu. Daily Mirror telur sig hafa heimildir fyrir því að Mills sé þegar farin að undirbúa slíkt viðtal og greinir blaðið jafnframt frá því að Stella, dóttir Paul og Lindu, hafi hvatt pabba sinn til að gera slíkt hið sama ef Mills lætur verða af sínu.
Menning Mest lesið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Sjá meira