Friðrik Ómar sneri niður ölvaðan ofbeldismann 1. nóvember 2006 11:00 óþægileg uppákoma Guðrún og Friðrik Ómar voru heppin að ekki fór verr þegar ölvaður maður réðst að þeim á árshátíð hjá Lyfjum og heilsu um síðustu helgi.
Söngvararnir Friðrik Ómar Hjörleifsson og Guðrún Gunnarsdóttir lentu í heldur betur óþægilegri uppákomu þegar þau komu fram á árshátíð hjá Lyfjum og heilsu á Nordica um síðustu helgi. „Við vorum í miðju lagi þegar það kom maður upp á sviðið og við sáum strax að hann var ekki allsgáður,“ segir Friðrik Ómar, en maðurinn byrjaði á því að grípa um hann og halda honum föstum. „Hann var eitthvað að bölsótast út í okkur en ég heyrði nú aldrei almennilega hvað hann var að reyna að segja. Það voru bara einhver leiðindi og ég frétti síðan að hann hefði verið eitthvað erfiður allt kvöldið.“ Friðrik Ómar hrinti manninum frá sér en hann fór þá að Guðrúnu og tók harkalega í hana líka. „Hún reyndi að forða sér og ég sá mig knúinn til þess að hjóla bara í hann og yfirbuga hann,“ segir Friðrik og hlær. „Ég sneri hann niður en þegar hann datt þá lenti hann ofan á hljóðfærum sem voru á sviðinu og eru í eigu hljómsveitarinnar Ísafold. Það skemmdust tvö hljómborð og eitthvað fleira en síðan komu fjórir menn hlaupandi og héldu honum niðri á meðan við forðuðum okkur út á hlaupum, skjálfandi á beinunum, enda höfðum við aldrei upplifað svona áður.“ Friðrik Ómar segist ekkert vita hvað gekk að manninum. „Við vorum náttúrulega þarna á árshátíð hjá Lyfjum og heilsu þannig að maður getur sér þess bara til að hann hafi verið að drekka ofan í lyf,“ segir hann hlæjandi enda alveg búinn að jafna sig á þessarri uppákomu en maðurinn var hins vegar handjárnaður og leiddur út af lögreglu. „Við höldum ótrauð áfram og erum með sýninguna Góða skemmtun á föstudaginn á Broadway þannig að við látum þetta ekkert trufla okkur. Við meiddumst sem betur fór ekki neitt en erum með eymsli í handleggjunum,“ segir söngvarinn Friðrik Ómar hress og kátur eftir átök helgarinnar. Guðrúnu hefur augljóslega ekki heldur orðið meint af árásinni þar sem hún var eldhress að vanda í þættinum Sex til sjö í gær og fyrradag.
Menning Mest lesið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Tónlist 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Áskorun Fleiri fréttir Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Sjá meira