Árni fékk á baukinn hjá Bubba 31. október 2006 17:15 Árni á enga samúð inni hjá tónlistamannninum Bubba Morthens sem lét þingmanninn fyrrverandi heyra það.
Bubbi Morthens vakti ekki mikla kátínu meðal Eyjamanna þegar hann hélt tónleika í Höllinni fyrir hálfum mánuði en þar lét tónlistamaðurinn Árna Johnsen óspart heyra það og taldi það með ólíkindum að "glæpon færi á þing," svo vitnað sé til umsagnar um tónleikanna á Eyjar.net. "Slíkt gerðist hvergi annars staðar í heiminum nema kannski í Afganistan." Bubbi rifjaði jafnframt upp atvik sem átti sér stað á Þjóðhátíð fyrir tveimur árum þegar Árni var sagður hafa slegið til söngvarans Hreims Arnar Heimissonar á sviðinu í Herjólfsdal en Árni neitaði öllum ásökunum í sjónvarpi á sínum tíma. Bubbi bar hins vegar vitni í Höllinni að þingmaðurinn fyrrverandi hefði logið að þjóðinni. Jóhann Ingi Árnason skrifar um tónleikanna á áðurnefndum vef og hann sagði í samtali við Fréttablaðið að áhorfendurnir hefðu skipst í tvær fylkingar. Sumir hefðu hlegið að þessum skotum Bubba en öðrum hefði vart stokkið bros á vör. "Þetta er orðið gamalt og leiðinlegt mál og það er enginn að pæla í þessu lengur," segir Jóhann Ingi. Tónlistamaðurinn sjálfur sat hins vegar fastur við sinn keip og taldi Eyjar hafa verið hárréttan stað til að gera grín að Árna Johnsen, framboði hans og lyga þingmannsins fyrrverandi í kringum kjaftshöggið. "Menn halda að bitið hafi orðið beiskt vegna velgengni minnar en því fer fjarri sanni," sagði Bubbi. "Ef menn geta ekki tekið því að ég hafi skoðun á framboði Árna Johnsen þá verður bara svo að vera," bætir Bubbi við. "Kannski skammast Eyjamenn sín svolítið fyrir Árna og þess vegna má ekki tala um þetta," segir Bubbi og upplýsir jafnframt að viðbrögðin hafi komið honum á óvart. "Ég hef hins vegar ekkert annað en gott um Vestmannaeyjar að segja og mörg af mínum bestu lögum urðu þar til."
Menning Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Sjá meira