Lífið

Svart kaffi og djass

Ragnheiður Gröndal og hljómsveitin Black Coffee Halda tónleika á veitingastaðnum Jómfrúnni í dag.
Ragnheiður Gröndal og hljómsveitin Black Coffee Halda tónleika á veitingastaðnum Jómfrúnni í dag.

Söngkonan Ragnheiður Gröndal kemur fram ásamt hljómsveitinni Black Coffee á sjöttu sumartónleikum veitingahússins Jómfrúarinnar í dag. Hljómsveitina skipa þeir Guðmundur Pétursson á gítar, Róbert Þórhallsson á bassa og Jóhann Hjörleifsson á trommur. Leikin verður djasstónlist blönduð poppi og blús.

Tónleikarnir hefjast kl. 16 en leikið verður utandyra á Jómfrúartorginu ef veður leyfir, en annars inni í veitingarhúsinu. Aðgangur er ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.