Síðasta yfirlýsing Johnny Cash 14. júlí 2006 09:30 Platan American V: A Hundred Highways inniheldur upptökur frá síðustu ævidögum Johnny Cash.
Platan American V: A Hundred Higways með bandarísku kántrí goðsögninni Johnny Cash er kominn út, þremur árum eftir dauða hans. Á plötunni er að finna nokkrar af hans allra síðustu upptökum sem meðal annars voru teknar upp á tímabilinu frá dauða eiginkonu hans June Carter og fram að dauða hans í október 2003. Líkt og á hinum plötunum í American seríunni byggist hún að mestu leyti upp á tökulögum eftir aðra fræga listamenn. Rick Rubin annaðist upptökustjórn og hljóðblöndun líkt og hann hafði gert á hinum plötunum. Þessi lög eru lokayfirlýsing Johnny Cash, sagði Rubin í nýlegu viðtali. Þetta er tónlistin sem hann vildi að við hin heyrðum. Að mínu mati er þetta besta platan í American seríunni, hún hefur öðruvísi karakter en hinar og á endanum verður þetta ein af hans bestu plötum. Cash náði að klára allan söng á plötunni áður en hann lést en allt undirspil var ekki fullklárað fyrr en í byrjun þessa árs. Cash samdi tvö lög á plötunni en önnur lög á plötunni eru meðal annars tökulög eftir Bruce Spingsteen, Gordon Lightfood og Hank Williams. Talið er að Cash hafi tekið upp nærri því 50 lög á síðustu mánuðum ævinnar og er talið líklegt að sjötta platan í American seríunni líti dagsins ljós áður en langt um líður.
Menning Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Fleiri fréttir Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Sjá meira