Innlent

Segist vera saklaus af smygli

Litháinn í héraðsdómi Fíkniefnamál er tengjast ferðum Litháa til landsins rata inn á borð dómstóla.
Litháinn í héraðsdómi Fíkniefnamál er tengjast ferðum Litháa til landsins rata inn á borð dómstóla. MYND/hörður

Þrítugur litháískur karlmaður sagðist fyrir dómi í gær saklaus af því að flytja inn rúma tvo lítra af amfetamínbasa auk tæplega 700 millilítra af brennisteinssýru, til söludreifingar hér á landi. Mál Ríkissaksóknara gegn honum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Litháinn var stöðvaður við hefðbundið eftirlit tollvarða á Keflavíkur­flugvelli 26. febrúar á þessu ári en hann var þá að koma til landsins frá Litháen í gegnum London. Í farangri hans fundust flöskur með sérkennilegum vökva. Vökvinn var rannsakaður og kom þá í ljós að í flöskunum var amfetamín í vökvaformi. Talið er að unnt sé að framleiða tæplega 2,4 kíló af amfetamínsúlfati, sem er algengasta neysluform efnisins hjá fíkniefnaneytendum, úr efnunum sem Litháinn flutti til landsins.

Tveir Litháar hafa þegar verið dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir innflutning á tæplega fjórum kílóum af metaamfetamíni, sem geymt var í sérstaklega útbúnu hólfi neðan í undirvagni bifreiðar sem flutt var til landsins með skipinu Norrænu. Litháarnir voru báðir dæmdir í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Austurlands.

Jakob L. Kristinsson, dósent í lyfjafræði við Háskóla Íslands, sagði í viðtali við Fréttablaðið skömmu eftir að fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík hóf rannsókn á hugsanlegri amfetamínframleiðslu, að með tiltölulega lítilli fyrirhöfn væri auðvelt að framleiða fíkniefni. Aðeins "lágmarksþekking í efnafræði, auk réttra vinnubragða við tilraunavinnu", ætti að vera nóg til þess að búa til söluvæn fíkniefni, ef hráefni er til staðar.

Jóhann Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, segir engin mál hafa komið upp vegna fíkniefnainnflutnings Litháa til landsins að undanförnu. "Við verðum að meta það sem svo að það hafi verið mikið áfall fyrir þá sem stóðu að innflutningnum á þessum efnum að hann hafi komist upp. Við höfðum ávinning af því að innflutningur á fíkniefnum með þessum hætti væri að aukast."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×