Innlent

Bóluefni vegna heimsfaraldurs

Norrænir heilbrigðisráðherrar eru sammála um að vinna áfram að því að framleitt verði sameiginlegt bóluefni vegna hugsanlegs heimsfaraldurs inflúensu. Þessi niðurstaða kom fram á ráðherrafundi í Noregi sem stóð dagana 11. til 13. júní.

Samþykkt var að kanna kosti og galla þess að framleiða bóluefni á vegum landanna sjálfra eða stofna ný fyrirtæki um þá framleiðslu í samstarfi við lyfjafyrirtæki. Endanlegt mat á þessum kostum er væntanlegt 1. nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×