Flóttamenn vegna bágrar stöðu sjónskertra á Íslandi 16. júní 2006 06:30 Helga Bjarkadóttir, sjónskert stúlka
Rut Sverrisdóttir býr í Svíþjóð ásamt tveimur börnum sínum, Sverri sem er eins og hálfs árs og Helgu sem verður sex ára í ágúst og er mikið sjónskert. Þau fluttust til Svíþjóðar fyrir tveimur árum vegna þess að Rut gat ekki hugsað sér að láta sjónskerta dóttur sína ganga í skóla á Íslandi. Rut er sjálf mikið sjónskert og var í skóla á Íslandi. Hún segir sláandi hversu mikill munur sé á aðhaldi blindra barna á Íslandi og í Svíþjóð. "Ég sá fram á það að þetta yrði bæði mikil vinna fyrir mig og stelpuna. Þess vegna fluttum við út. Ég man það að þegar ég var í skóla sjálf á Íslandi þurfti mamma að hafa fyrir öllu. Kerfið heima hefur bara farið versnandi síðan ég var í skóla." Helga byrjar í skóla í haust og Rut segir hana hafa fengið ótrúlegan stuðning í aðdraganda skólagöngunnar. Hún hafi fengið að fara í heimsókn í skólann til að læra á umhverfið, henni hafi verið kennt að ganga í skólann, hún hafi farið og borðað með tilvonandi bekkjarfélögum sínum sem hafa verið hálfu ári lengur en hún í skóla til að læra á matsalinn og fengið þjálfun í íþróttasalnum. Helga þurfi ekki að lesa blindraletur en notist þess í stað við lessjónvarpsskjá. Henni hafi verið útvegaður einn slíkur fyrir heimilið og annar fyrir leikskólann, sem svo muni fylgja henni upp í skólann. Þá fái hún spilara fyrir hljóðbækur þegar að flóknari textum kemur, auk þess sem stuðningsfulltrúi hennar úr leikskólanum fylgir henni upp í grunnskólann. "Þegar hún byrjar í skólanum þá á hún að þekkja umhverfið eins og öll önnur börn," segir Rut. "Sveitarfélagið er með mann í vinnu hjá sér sem sér um að allt sé til staðar sem hún þarf." Allt er þetta greitt af sjónstöðinni þarlendis. Rut segir að þar til þekkingarmiðstöð verði komið á fót á Íslandi muni hún og börnin búa í Svíþjóð. "Við erum eins og flóttamenn. Við komumst ekki heim vegna þess hvað málefni fatlaðra eru aftarlega á merinni. Ef ég flyt heim missir Helga möguleika á námi og það vil ég ekki bjóða mínu barni." Rut segir að vinkona Helgu, sem býr á Íslandi og er einnig sjónskert, sé á leið í skóla í haust og ekkert hafi verið gert í hennar málum. Rut vonar að bætt verði úr málum á Íslandi. "Skólinn reynir að gera sitt besta en hefur ekki það sem til þarf. Það vantar þekkingarmiðstöð til að hægt sé að leita eitthvert með fyrirspurnir."
Innlent Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira