Fimmtíu hrefnur verða veiddar í ár 14. júní 2006 07:00 Einar K. Guðfinnsson Telur veiðarnar hafa haft meira rannsóknarlegt gildi en áður var talið.
Ákveðið hefur verið að gefa út leyfi fyrir því að veiða 50 hrefnur í vísindaskyni á þessu ári. Eftir að veiðunum lýkur verður búið að veiða 150 hrefnur af þeim 200 sem hvalrannsóknaáætlun Hafrannsóknastofnunarinnar gerði ráð fyrir. Áætlunin var lögð fyrir vísindanefnd Alþjóða hvalveiðiráðsins árið 2003, í samræmi við reglur ráðsins. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir veiðum á 200 langreyðum, 100 sandreyðum og 200 hrefnum á rannsóknatímabilinu. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær hefja á framkvæmd langreyðar- og sandreyðarhluta áætlunarinnar. Hrefnuveiðarnar hófust sumarið 2003 en þær eru í samræmi við stofnsamning Alþjóða hvalveiðiráðsins. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segist hafa ákveðið að skynsamlegt væri að ljúka rannsóknunum á tveimur árum. Ég taldi einboðið að stækka skammtinn úr 39 í 50 hrefnur á þessu ári til þess að ljúka rannsóknunum á skemmri tíma en annars hefði verið. Það hefur komið í ljós, þvert á það sem sumir héldu fram, að veiðarnar hafa haft mikið rannsóknarlegt gildi sem á eftir að nýtast okkur vel. Í fréttatilkynningu sem Sjávarútvegsráðuneytið sendi frá sér í gær segir að vísbendingar séu um að stærð hrefnustofnsins geti haft veruleg áhrif á afrakstursgetu nytjafiska, meðal annars þorsks, en óvissa er um hversu mikil áhrifin eru, einkum vegna skorts á gögnum um fæðusamsetningu hrefnu hér við land. Markmið rannsókna Hafrannsóknastofnunarinnar er að kanna betur hlutverk hrefnu í vistkerfi hafsins í kringum landið. Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu og formaður íslensku sendinefndarinnar í Alþjóða hvalveiðiráðinu, segir skammtinn sem ákveðið hefur verið að veiða á þessu ári vera í samræmi við markmið sem ráðuneytið hefur sett. Hann segir viðbúið að veiðunum verði mótmælt á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins. Það má búast við því að veiðum okkar verði mótmælt. Andstaðan við veiðarnar hefur þó aðallega beinst gegn veiðum Japana, enda þær í talsvert mikið meira magni en hjá öðrum þjóðum. En það er útlit fyrir að þjóðir sem styðja hvalveiðar nái hugsanlega meirihluta á næstunni, í fyrsta skipti í meira en tuttugu ár.
Innlent Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Sjá meira