Humar sumar á Hornafirði 15. maí 2006 12:30 Mynd/Júlía Imsland
Það er sannkallað humar sumar framundan á Hornafirði. Rúmlega fimmtíu skólakrakkar hafa verið ráðnir í humarvinnslu í Skinney-Þinganesi í sumar, en það er mun meiri fjöldi en hefur verið ráðinn í humarvinnslu síðustu ár. Humarvertíðin er komin á fullt á Hornafirði og veiðar lofa góðu því sjaldan hefur jafnmikið veiðst af humri og nú. Hjá Skinney-Þinganesi hf. eru fjórir bátar á veiðum og munu veiðar standa þar til humarkvótinn klárast sem hefur hingað til verið um mánaðarmót júní-júlí. Rúmlega fimmtíu skólakrakkar hafa verið ráðnir í humarvinnslu í ár og er það meiri fjöldi en ráðinn hefur verið síðastliðin ár. Skólakrakkarnir er flestir á sextánda og sautjánda aldursári og mættu þeir eldri formlega til vinnu í morgun, en þau sem eru á sextánda ári byrja þegar grunnskóla lýkur. Mikil vinna er framundan og því sjá margir fram á góðar tekjur í sumar. Hermann Stefánsson, framleiðslustjóri hjá Skinney-Þinganesi hf., segir að krakkar vilji fá vinnu í humri og velflestir á þessum aldri muni vinna í humrinum í sumar. Hann segir að humarinn sé seldur víða um heim en vaxandi markaður sé á Íslandi. Heill humar selst aðallega til Ítalíu, Spánar og Japans og humarhalar eru einkum seldir til Bandaríkjanna og Kanada. Það er ekki ofsögum sagt að humarinn sé stolt Hornfirðinga og það fer varla framhjá neinum sem leggur leið sína til Hornafjarðar. Hermann segir að margir vilji meina að humarinn sé fæddu og uppalinn við strendur Hornafjarðar. Hann segir að humarinn skipi sterkan sess í hugum Hornfirðinga, sérstök humarhátíð sé haldin á sumrin auk þess sem heimamenn séu duglegir að borða, elda, steikja og grilla humar.
Fréttir Innlent Mest lesið Fjórir látnir eftir skotárás á Manhattan Erlent Maxwell biðlar til Hæstaréttar Erlent Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns Innlent Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Innlent „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Innlent Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Innlent Íhuga að greiða sextíu milljarða til að friðþægja Trump Erlent Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Innlent Á annan tug í valnum eftir að Rússar sprengdu fangelsi í loft upp Erlent Mögulegur fyrirboði um goslok Innlent Fleiri fréttir Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Neyðarástand á Gasa og ágengir túristar angra kirkjugesti Dóttirin í Súlunesi ákærð Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Rannsaka áhrif samfélagsmiðla á heilastarfsemi barna Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Gat ekki sannað að verkstæðið tjónaði vélina Mögulegur fyrirboði um goslok Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Enn gýs úr einum megingíg og virknin nokkuð stöðug Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Áhyggjur af tollum ESB, olíuþjófur gómaður og fífldjarfir ferðamenn „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Hjólreiðamaður slasaður við Kerlingarfjöll Árekstur í Öxnadal Ung stúlka varð fyrir húsbíl og hljóp af vettvangi Vilja að ríkisstjórnin leggi allt kapp í að afstýra tollunum Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Ekkert hægt að gera nema húseigendur kæri Segir afkomu hundraða ógnað með beinum hætti Mikil umferð á gosstöðvunum og óvissa á Grundartanga Gripinn glóðvolgur í skjóli nætur við að tappa af bílnum Sóttu veikan ferðamann í Loðmundarfjörð Sjá meira