Svanhildur heimsótti Opruh 6. apríl 2005 00:01
Svanhildur Hólm Valsdóttir verður væntanlega í forgrunni þegar sjónvarpsdrottningin Oprah Winfrey gefur Íslandi gaum í þætti sínum í liðnum Oprah Takes You Around the World á vormánuðum. Eins og alþjóð veit voru útsendarar Opruh á Íslandi nýlega að afla efnis um Ísland og íslenskar konur sem Ophra hyggst nota þegar hún mun fræða allar þær milljónir sem fylgjast með þætti hennar um land íss og elda og valkyrjurnar sem það byggja. Erindrekar Ophru ræddu við nokkrar íslenskar konur áður en hafist var handa við tökur hér á landi. Svanhildur hefur greinilega uppfyllt þær kröfur sem Oprah gerir til þeirra kvenna sem hún fær til að leggja sér lið í þessum innslögum þar sem henni var flogið til Bandaríkjanna þar sem hún sótti höfuðstöðvar Opruh heim og fór í viðtöl. Svanhildur er nýkomin heim aftur og sagði frá ferðalagi sínu í Ísland í bítið á Stöð 2 í gærmorgun og lýsti því fjálglega hversu risavaxið fyrirtæki hefur orðið til í kringum persónu Ophru. Sjálf kallar Svanhildur ekki allt ömmu sína þegar kemur að sjónvarpi en hún hefur bæði stýrt Kastljósinu á RÚV og Ísland í dag á Stöð 2 með glæsibrag. Hún sagði það þó hafa verið undarlega tilfinningu að vera komin hinum megin við borðið í spor viðmælandans í þætti sem er umfangsmeiri en öll starfsemi Ríkisútvarpsins samanlögð.
Menning Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira