Skrifar þriðju súpuna 6. apríl 2005 00:01
Lítið hefur farið fyrir Tvíhöfða frá því að útvarpsþáttur þeirra var lagður niður ásamt rokkstöðinni Skonrokki. Þeir félagar hafa þó fóstrað Tvíhöfðafréttir í fréttatíma Stöðvar 2, auk þess sem Jón Gnarr er að vinna að leikriti og skrifar fasta pistla í Fréttablaðið. Sigurjón hefur einnig séð um kvikmyndagagnrýni hjá DV og unnið fyrir 365 - ljósvakamiðla, sem reka meðal annars Stöð 2, Sýn og Bylgjuna. Hann vill þó ekki upplýsa að svo stöddu í hverju vinnan felst. "Okkar mál eru dálítið á huldu þessa stundina en ég er að vinna að ákveðinni þróunarvinnu fyrir 365 - ljósvakamiðla. Við erum ekki búnir að loka hurðinni á útvarpið en ef þátturinn færi aftur í loftið yrði hann sennilega ekki í þeirri mynd sem hann hefur verið," segir Sigurjón. "Annars er heilmikil kvikmyndahátíð að byrja svo það verður nóg að gera hjá mér í kvikmyndagagnrýninni." Sigurjón var um tíma virkur í tónlistarlífi landans, fyrst með rokksveitinni Ham og síðar í einmenningssveitinni Olympiu. Hann tók sér langt frí frá tónlistinni en segist vera farinn að huga að henni á ný. "Ég tók mér eiginlega tíu ára frí frá tónlistinni en með endurkomu Ham fór ég að hugsa aftur um hana og er farinn að finna mig í henni á ný," segir Sigurjón en þvertekur fyrir að hann muni endurvekja Olympiu. Spurning er þá hvort Ham verði vakin upp frá dauðum. "Ég játa því hvorki né neita," segir Sigurjón.
Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira