Woody Allen á kvikmyndahátíðinni 6. apríl 2005 00:01
Iceland International Film festival 2005 hefst á fimmtudaginn og það eru enn að bætast spennandi titlar á dagskrána en nýjasta viðbótin er sjálfur meistari Woody Allen en nýjasta myndin hans, Melinda And Melinda, verður forsýnd á hátíðinni. Gagnrýnendum ber saman um að Allen sé í toppformi í myndinni, sem mun vera sú besta sem hann hefur sent frá sér um árabil. Myndin er dramatísk þótt glensið sé aldrei langt undan, enda er yfirskrift hennar sú að lífið geti verið gleðileikur eða harmleikur, það fari allt eftir því hvernig litið er á það. Allen teflir að vanda fram breiðum hópi leikara með gamanleikarann Will Ferrell (Elf, Anchorman) í broddi fylkingar. Ferrell er með ólíkindum vinsæll um þessar mundir og eftirvæntingin eftir Melinda And Melinda er umtalsverð. Sjálfur segist Allen þó í nýlegu viðtali við Empire gera ráð fyrir því að bæði áhorfendur og kvikmyndaiðnaðurinn farri að missa áhugann á honum og verkum hans. Og það sem meira er: honum er nákvæmlega sama. Melinda And Melinda verður sýnd tvisvar á IIFF í Regnboganum þann 18. apríl klukkan 20 og 20. apríl klukkan 22. Auk myndar Allens hafa þrjár splunkunýjar myndir frá Noregi bæst í glæsilegan hóp mynda á hátíðinni. Þetta eru myndirnar Uno, eftir Aksel Hennie og Jon Andreas Andersen, Min Misunderlige Frisör, eftir Annette Sjursen, og Monstertorsdag eftir Arild Østin Ommundsen. Myndirnar eru mjög ólíkar innbyrðis en eiga það allar sameiginlegt að hafa vakið mikla athygli á kvikmyndahátíðum undanfarið.
Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira