Bók um Thorsara fargað 4. desember 2005 10:19
Heilu upplagi af nýrri bók Guðmundar Magnússonar, sagnfræðings og blaðamanns, um Thorsættina var fargað og annað handrit prentað í staðinn. Samkvæmt heimildum NFS var ástæða förgunarinnar umfjöllun um nasistaleiðtogann George Rockwell og hjónaband hans og Þóru Hallgrímsson. Útgefandi segir að mistök hafi átt sér stað. Hann vill þó ekki svara því hvort umfjöllunin sé ástæða förgunarinnarGuðmundur Magnússon sagnfræðingur hefur skrifað bókina Thorsarana um sögu Thorsættarinnar.Í fyrstu útgáfu bókarinnar var kafli þar sem sagt frá hjónabandi Þóru Hallgrímsson og stofnanda Nasistaflokks í Bandaríkjunum, sem áður var yfirmaður Keflavíkurflugvallar. Kaflinn fór eitthvað fyrir brjóstið á útgefandanum en eigandi Eddu, útgáfunnar sem gefur bókina út er einmitt Björgólfur Guðmundsson, eiginmaður Þóru Hallgrímsson.Upplaginu var fargað og bókin prentuð á nýjan leik án kaflans um fyrrum eiginmann Þóru.George Lincoln Rockwell, fyrrum eiginmaður hennar, var myrtur í apríl 1967 af fyrrum liðsmanni í Bandarísku Nasistahreyfingunni. Morðinginn, John nokkur Patler, hafði þá stuttu áður verið rekinn úr félagsskap Rockwell og nasista fyrir meinta Bolsévíska slagsíðu sem þótti ekki henta málstað nasista.Í þeirri útgáfu bókar Guðmundar sem nú er núkominn í búðir er einungis einu sinni minnnst á George Rockwell, og þá sem annan eiginmann Þóru.Páll Bragi Kristjónsson, útgafústjóri Eddu útgáfu, staðfesti í samtali við NFS að fyrri prentun bókarinnar hefði verið fargað, eins og hann orðaði það. Þegar hann var spurður að því hvort upplaginu hefði verið fargað vegna umfjöllunar um hjónaband Þóru og George Rockwell, kvaðst hann ekki vilja svara þeirri spurningu. Bragi sagði það hafa verið samkomulag útgáfunnar og höfundar að prenta bókina upp á nýtt.Guðmundur Magnússon sagðist í samtali við NFS vera ánægður með lokaútgáfu bókarinnar. Hann vildi þó ekki svara því hvort ástæða förgunar fyrsta upplagsins hefði verið sú að fjallað hefði verið um Rockwell og Þóru, kvaðst bundinn trúnaði við útgefendur.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira