Með tugi kílóa í farangrinum 1. mars 2005 00:01
Nokkuð er um að Íslendingar hafi með sér tugi kílóa af erlendri matvöru þegar þeir snúa heim úr ferðalögum í Bandaríkjunum og Evrópu. Lög kveða skýrt á um að ekki megi flytja meira en þrjú kíló matvæla til landsins en reglugerð sem hugsuð var fyrir vísindaleiðangra hefur verið túlkuð vítt svo fólk geti haft matvælin með sér inn í landið. Kári Gunnlaugsson hjá Tollstjóraembættinu í Keflavík segir að ekki hafi verið amast við því að fólk flytji meira inn en nemur almennu heimildinni í lögum. Undanþága frá takmörkununum er fyrir hendi og þarf þá að greiða 125 krónur fyrir hvert kíló umfram leyfilegt hámark innfluttra matvæla. Kári segir að strangt til tekið eigi reglugerðin aðeins við um sérstök tilfelli, svo sem þegar vísindaleiðangrar koma til landsins, en henni hefur verið beitt í innflutningi fleiri einstaklinga þó að þeir falli ekki undir hana. Kári segir að það séu aðallega flugáhafnir og fólk sem ferðast mikið sem nýti sér umrædda undanþágu, tollstjóraembættið hafi ekki séð ástæðu til að stöðva þennan innflutning þótt hann tengist vísindaleiðöngrum á engan hátt. Fermingar eru í nánd og veit Fréttablaðið til þess að fólk hafi keypt inn í fermingarveislur á ferðalögum sínum vestur um haf. Viðmælandi Fréttablaðsins, sem er nýkominn frá Bandaríkjunum, segist hafa keypt tuttugu kíló af kjöti á rúmlega níu þúsund krónur og þar af hafi sex kílóa skinkubiti kostað um 845 krónur. Til samanburðar má geta þess að kílóið af skinku kostar um 700 krónur í lággjaldavöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Fleiri fréttir Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Sjá meira