Innlent

Bleikir Bessastaðir

Bessastaðir voru lýstir upp í bleikum lit í gærkvöld í tilefni af því að októbermánuður er helgaður vitundarvakningu um brjóstakrabbamein. Ár hvert greinast á milli 160 og 170 íslenskar konur með brjóstakrabbamein, þar af er nær helmingurinn á aldrinum frá þrjátíu til sextíu ára. Það er ekki bara við Bessastaði sem bleik lýsing verður sýnileg í byrjun október, sama verður gert á Selfossi, Akranesi, Ísafirði, Austfjörðum og í Keflavík, þar sem Bergið verður bleikt.  Þetta er hluti af alþjóðlega átaki, og með hliðstæðum hætti verða lýst upp tvö hundruð mannvirki í fjörutíu löndum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×