Íslenskt bygg í þorrabjórnum 19. janúar 2005 00:01
Ölgerðin Egill Skallagrímsson bruggar þorrabjór sinn þetta árið að hluta úr íslensku byggi. Íslenskt bygg hefur ekki áður verið notað til bjórframleiðslu en landbúnaðarforystan sér fram á bjarta tíma í þessum efnum og vonast til að þetta sé aðeins upphafið að einhverju meira. Byggið sem Ölgerðin notast við er ræktað á bænum Leirá í Borgarfirði hvar Ásgeir Kristinsson er bóndi. Hann hefur ræktað bygg í átta ár og það voru hátt kjarnfóðurverð, vilji til að nýta land og tæki og áhugi á hvort hægt væri að bæta ræktuninni við annan búrekstur sem ráku hann útí þetta. Sjálfur er Ásgeir ekki mikill bjórþambari. "Nei ég er það nú ekki en finnst gott að smakka hann til tilbreytingar eins og annað." Engu að síður er hann ánægður með bjórinn sem að hluta til er bruggaður úr bygginu af ökrum Leirár. "Já, ég get ekki sagt annað. Þetta höfðar ágætlega til mín." Hann vonast til að framhald verði á bjórbruggun úr íslensku byggi en segir það undir neytendum komið. "Við skulum sjá til um viðtökurnar, hvort ég er einn um þennan smekk eða hvort fleiri hafa svipaðan smekk," segir byggbóndinn sem hlakkar til þorrans sem hann segir tilbreytingu í sammdeginu.
Fréttir Innlent Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Svona mun Suðurlandsbraut líta út Innlent Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Innlent Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Innlent Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu Innlent Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Erlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Fleiri fréttir Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Bein útsending: Opinn fundur um áfallaþol Íslands Sakar mótframbjóðanda um trúnaðarbrest og kallar eftir prófkjöri Sjá meira