Íbúðalánasjóður í kringum lögin 14. júlí 2005 00:01
Af samkomulagi um innheimtu krafna, sem er viðuaki við lánasamning Íbúðalánasjóðs við banka og öðrum gögnum sem Fréttastofa Stöðvar 2 hefur undir höndum, er ekki annað hægt að ráða en að bankarnir leppi í raun lánveitingar Íbúðalánasjóðs til einstaklinga sem eru umfram þær heimildir sem sjóðurinn hefur samkvæmt lögum til að lána eða tæpar sextán milljónir. Þannig sér bankinn um alla umsýslu þeirra fasteigna sem eru að veði í lánum Íbúðalánasjóðs til bankanna samkvæmt samkomulaginu, komi til vanskila og greiðir andvirði þeirra inná bankareikning séu þær seldar nauðungarsölu. Jafnframt greiðir Íbúðalánasjóður allan kostnað af umsýslunni en bankarnir skuldfæra þann kostnað af sérstökum bankareikningi Íbúðalánasjóðs. Seljist fasteignirnar fyrir lægra verð en skuldin nemur, tekur Íbúðalánasjóður á sig tapið. Þetta þýðir, samkvæmt því sem sérfræðingar segja Fréttastofu, að það sé Íbúðalánasjóður sem sé að lána féð og allur viðaukinn og leyndin um hver standi að baki veðunum sé tilraun til að fela þá staðreynd að verið sé að fara í kringum lögin um hámarkslánin sem Alþingi setti í desember. Íbúðalánasjóður sé í raun að lána allt að tuttugu og fimm milljónir gegn veði í húsnæði og bankarnir taki að sér alla umsýsluna. Á meðan fær sjóðurinn ekki heimild frá stjórnvöldum til að endurfjármagna lán til viðskiptavina sinna á þeim vöxtum sem nú eru í boði. Forsvarsmenn Íbúðalánasjóðs vildu ekki koma í viðtal. Jóhann G. Jóhannsson forstöðumaður áhættu og fjárstýringar Íbúðalánasjóðs sagðist furða sig á því að fréttastofan væri með trúnaðargögn í höndunum sem bankaleynd hvíldi yfir. Hann segist ekki ætla að tjá sig um efnisinnihald einstakra samninga en telji að allar lánveitingar séu innan löglegra marka og styðjist þar meðal annars við nýlegt lögfræðiálit. Hann segir grundvallaratriði að sjóðurinn láni bönkunum ekki meira en hann þurfi til að halda uppgreiðsluvandanum í skefjum. Þar með hafi bankarnir ekki loforð frá sjóðnum um að þessum lánveitingum verði haldið áfram. Hann segist ekki óttast að sjóðurinn tapi á viðskiptunum þótt íbúðaverð fari lækkandi.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira