Tívolíið slysagildra 14. júlí 2005 00:01
Er ferðatívolíið við Smáralind slysagildra eða er þar allt í góðu lagi? Opinberir eftirlitsaðilar leggja blessun sína yfir starfsemina en maður sem starfað hefur í svipuðum leikgarði og horfði upp á leiktæki bresta við Smáralindina í gær er lítt hrifinn. Sólveig Bergmann ræddi við hann í dag. Það var líf og fjör á bílastæðinu við Smáralind í dag þar sem breskt ferðatívolí hefur komið sér fyrir. Gísla Berg, sem starfað hefur í ferðatívolíi í Bandaríkjunum, var þó verulega brugðið þegar hann leit þar við í gær. Hann segir að vagn á einu tækinu hafi brotnað af að hluta til og hafi danglað utan í hina vagnana. Hann benti síðan á að maðurinn sem stjórnar tækinu hafi ekki verið á sínum stað og sinnt eftirliti frá stjórnklefanum. Hann þurfti því að hlaupa að stjórnklefanum og tækið fór á meðan tvo og hálfan hring með lausan vagninn. Haft var samband við Vinnueftirlitið í dag vegna atburðarins og að sögn eftirlitsmanns á þeirra vegum virðist sem gúmmídekk sem heldur vagninum stöðugum uppi hafi sprungið. Og eins og sjá má var búið að lagfæra tækið og það komið á fulla ferð á ný, Gísla til mikillar undrunar. Hann sagði að tækið væri að 50-60 kílómetra hraða á klukkustund og ef svona þungur hlutur lenti á manni þá væri voðinn vís. Það vakti reyndar athygli að við þetta tæki, voru öryggiskeðjur sem halda eiga fólki frá, ekki festar. Og það var ekkert einsdæmi eins og þessar myndir sýna. Þá gætu leikmenn talið að þessar stoðir sem settar hafa verið undir tækin hangi saman á lyginni einni en yfir þessa uppsetningu hefur Vinnueftirlitið lagt blessun sína. Þeir segja alvanalegt að spýtur séu notaðar til stuðnings. Tækin við Smáralind hefðu auk þess öll farið í gegnum ástandsskoðun í Bretlandi. Inntur eftir því hvort eðlilegt væri að rafgeymar stæðu óvarðir og öryggiskeðjur ekki notaðar sagði eftirlitsmaður á vegum Vinnueftirlitsins að það væri kannski tilfallandi hjá starfsmönnum Tívolísins. Þeir ættu að fara eftir rafmagnssamþykktum og hlýta þeirri reglu að vera vel vakandi yfir öryggi þeirra sem tækin nota. Tívolíið fær því hærri einkunn hjá Vinnueftirlitinu en hjá fyrrverandi tívolístarfsmanninum Gísla Berg.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira