Risabor snúið við 14. júlí 2005 00:01
Grípa varð til þess neyðarúrræðis við gangagerð á Kárahnjúkum að snúa einum risaboranna við, þegar hann átti aðeins eftir um kílómetra að Hálslóni. Borinn lenti á óþéttu bergi og vatn tók að streyma inn. Verkinu miðaði vel í upphafi og borinn stefndi óðfluga að Hálslóni í byrjun mánaðar, en síðan tók við tveggja kílómetra langur kafli þar sem gekk mun hægar vegna óþétts bergs með tilheyrandi vatnsrennsli. Þá var gripið til þess ráðs að þétta bergið framan við borkrónuna jafnóðum með sementsgraut. Þegar borinn átti eftir um ellefuhundruð metra að Hálslóni, á föstudag, þurfti að stöðva hann og nú hefur verið ákveðið að sprengja síðasta áfangann á hefðbundinn hátt, þegar borinn er farinn úr göngunum. Það tekur hins vegar margar vikur að snúa bornum við, enda er hann engin smásmíð. Hundrað og tuttugu metra langur og vegur sex hundruð tonn. Borkrónan ein vegur um 75 tonn. Umhverfis hana verður sprengdur hellir í bergið til að hægt verði að losa af henni ýmsan búnað áður en bornum verður bakkað út. Þá þarf að taka borinn í sundur og setja aftur saman öfugan. Því má ætla að ekki verði byrjað að bora í hina áttina fyrr en í haust, til móts við bor tvö en sá hefur einnig tafist í nokkrar vikur vegna lausra jarðlaga. Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, Sigurður Arnalds, segir að reiknað hafi verið með því að nokkrir mánuðir færu í tafir vegna jarðfræðilegra erfiðleika. Sá tími sé ekki enn uppurinn, þrátt fyrir tafirnar. Gangagerðin eigi því, þrátt fyrir þessi vandkvæði að geta staðist áætlun, ef ekkert annað fer úrskeiðis úr þessu, en stefnt er að því að vatni verði hleypt á göngin í janúar árið 2007. Verulegur vatnsagi er enn þar sem borinn var stöðvaður og vatnið rennur sem leið liggur út úr göngunum, um 800 lítrar á sekúndu. Boruð hefur verið hola af yfirborðinu og niður í göngin þar sem þau fara undir Glúmsstaðaá og þar á að dæla upp hluta af vatninu til að draga úr rennslinu út aðrennslisgöngin. Til samanburðar má geta þess að með risaborunum verða boraðir 50 kílómetrar af þeim 72 kílómetrum af jarðgöngum sem þarf vegna Kárahnjúkavirkjunar. Það jafngildir því að boruð væri göng frá Reykjavík til Munaðarness í Borgarfirði.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira