Innlent

Hver lítri margskattlagður

"Það versta í þessu er að ríkið notar tækifærið til þess að raka til sín enn meiri fjármunum," segir Stefán Ásgrímsson, ritstjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Félagið hefur skorað á stjórnvöld að lækka álögur sínar á bifreiðaeldsneyti nú þegar heimsmarkaðsverð er í hámarki. "Áttatíu krónur af hverjum bensínlítra fer til ríkisins og hver lítri er margskattlagður," segir Stefán. Olíugjald fyrir bensín er nú 28,60 en gjaldið fyrir dísilolíu er 41 króna að sögn Stefáns. Níutíu prósent vörugjald sé á bensíni, talsvert meira en á dísilolíu. Þá er 24,5 prósent virðisaukaskattur lagður ofan á allt saman. "Eftir skattlagninguna borga neytendur því næstum það sama fyrir bensín og dísilolíu, eins og olíufélögin greiða svipað verð fyrir hvora gerð olíu í innkaupum," segir Stefán. Miðað við verðþróun á heimsmarkaði má ætla að tekjuaukning ríkissjóðs af virðisaukaskatti á hátt eldsneytisverð nemi hátt í 500 milljónum króna að því er fram kemur í útreikningum FÍB. Ekki náðist í Geir H. Haarde fjármálaráðherra í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×