Innlent

Kjalvegur tilbúinn 2007-2008

Áhugamenn um uppbyggingu Kjalvegar ætla að halda fund í haust og stofna félag. Í framhaldi af því hefst undirbúningur að hönnun og fjármögnun vegarins. Kjartan Ólafsson alþingismaður segir að gamla vegstæðið verði að mestu leyti notað og því þurfi ekki mjög flókið umhverfismat. Uppbyggður Kjalvegur geti verið orðinn að veruleika 2007-2008. "Það þarf að fara í gegnum veðurfarsupplýsingar og meta hvað þurfi að byggja veginn hátt upp," sagði hann í Morgunútvarpi Fréttablaðsins á Talstöðinni í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×