Erlent

Hættir að niðurgreiða umskurð

Norska ríkið hefur hætt þáttöku í kostnaði við umskurð á múslímadrengjum. Umboðsmaður sjúklinga þar í landi óttast að það kunni að leiða til óvandaðra vinnubragða. Fram til þessa hafa múslímar aðeins þurft að greiða sem svarar 750 krónum fyrir að láta umskera syni sína. Nú þegar ríkið hefur hætt þátttöku í kostnaðinum þurfa þeir að greiða 100 þúsund krónur. Rökin fyrir þessu eru þau að umskurður sé trúarlegs eðlis og komi heilsugæslu ekkert við. Í heilbrigðiskerfinu verði að forgangsraða og nota peningana þar sem þeirra sé mest þörf.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×