Uppnám vegna heimsóknar 30. júní 2005 00:01
Uppnám ríkir í viðskiptalífinu og innan utanríkisþjónustunnar vegna hótana kínverskra yfirvalda. Þau eru ævareið vegna komu taívanskrar sendinefndar hingað til lands og hóta aðgerðum. Sendinefnd með sjálfum utanríkisráðherra Taívans kom hingað til lands síðdegis og hóf þar með óformlega heimsókn sem valdið hefur töluverðu uppnámi. Kínverjar eru æfir vegna heimsóknarinnar, þeir vilja ekki að neinn eigi samskipti við fulltrúa stjórnvalda á Taívan, sem þeir líta á sem uppreisnarhérað, og þegar Taívanar fá stimpil í vegabréf ríkis sem nánast hvergi er viðurkennt er það stórmál í augum Kínverja. Íslenska utanríkisráðuneytið sver af sér nokkur afskipti af heimsókninni og sagði Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri, að þarna væru á ferð venjulegir ferðamenn með ferðamannaáritun í einkaerindum. Kínverjunum er nokk sama og hafa, samkvæmt heimildum fréttastofunnar, hótað því að rifta viðskiptasamningum sem gerðir hafa verið nýlega og spilla fyrir íslenskum hagsmunum á alþjóðavettvangi. Spenna mun vera innan utanríkisþjónustunnar vegna málsins og íslenskir kaupsýslumenn, sem gert hafa samninga við Kína nýverið, eru sagðir vita af óánægju Kínverjanna. Enda hafa þeir ekki legið á þeirri skoðun sinni við ráðuneyti, stofnanir og viðskiptamenn í dag, að heimsóknin sé óhæfa. Hjá forsetaskrifstofunni fengust þau svör að sendinefndin hefði ekki snúið sér þangað, en engin svör fengust um hvort að kínverska sendiráðið hefði með einhverjum hætti komið óánægju sinni til skila. Taívönum er mikið í mun að vekja ekki athygli en þó að heimsóknin sé sögð einkaerindi og íslensk stjórnvöld segist koma hvergi nærri er fréttastofunni kunnugt um að hvorugt er með öllu satt. Taívanska sendinefndin mun í kvöld hitta þingmenn, meðal annars Bjarna Benediktsson og Jón Gunnarsson, sem og frammámenn í viðskipta- og menningarlífi í Perlunni og hefur sótt stíft að hitta sem flesta til að kynna þeim málstað Taívans. Nefndin heimsækir svo útflutningsráð á morgun, en það skipulagði til að mynda stærstan hluta heimsóknar forseta Íslands til Kína fyrir hönd utanríkisráðuneytisins og í samstarfi við sendiráðið í Peking. Kínverjar hafa áður haft í hótunum vegna samskipta Íslendinga og Taívana sem og raunar samskipta þeirra við aðrar þjóðir, en hafa sjaldnast fylgt hótununum eftir af nokkurri hörku.
Fréttir Innlent Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Sjá meira