Tíuþúsundföld eyðing 23. júní 2005 00:01
Samhliða því að flutningar á sjó hafa aflagst smám saman undanfarin ár hafa þungaflutningar um þjóðvegi landsins margfaldast. Viðmiðunartölur gera ráð fyrir að vegslit af völdum þungs bíls á borð við vöruflutningabíl sé um það bil 10 þúsund sinnum meira en af völdum fólksbíls. Friðleifur Ingi Brynjarsson, verkefnastjóri í umferðardeild Vegagerðarinnar, segir umferð um þjóðvegi landsins hafa stóraukist síðustu ár og það kunni að fela þá aukningu sem orðið hefur í þungaflutningum. Hann segir mælingar sem gerðar voru í Hvalfirði árin 1990 og 2002 til dæmis einungis sýna hlutfallsaukningu þungaumferðar upp á eitt prósentustig, úr um sjö í átta prósent af almennri umferð. Á fimmtán ára tímabili, frá 1989 til 2004 segir hann hins vegar umferð þungra bíla á hringveginum við gatnamót Akranesvegar hafa þrefaldast, farið úr um 95 í um 290 þunga bíla á sólarhring. "Þó svo að þungaumferð hafi stóraukist, þá drukknar sú aukning í fólksbílaaukningunni," segir hann. Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri segir vegskemmdir af völdum þungaflutninga hafa verið skoðaðar en fátt sé nýtt í þeim efnum. "Flutningar hafa verið að færast af sjó upp á þjóðvegakerfið síðustu fimmtán ár. Um síðustu áramót gerðist ekki annað en síðasta skipið var að hætta." Vegsig segir Jón hins vegar ekki skrifast á þungaflutinga, heldur skipti þar undirlag meira máli. Vegsig og mishæðóttir vegir séu því eilífðarvandamál að fást við. "Hitt er svo annað mál að þungir bílar brjóta vegakerfið heilmikið niður og við því verðum við bara að bregðast."
Fréttir Innlent Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Fleiri fréttir Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira