Kjarasamningum sagt upp? 9. september 2005 00:01
Miðstjórn Samiðnar telur forsendur kjarasamninga brostnar miðað við núverandi verðbólgu og ástand efnahagsmála. Formaður Samiðnar segir að nái endurskoðunarnefnd um forsendur kjarasamninga ekki viðunandi niðurstöðu, komi ekki annað til greina en að segja upp samningum. Miðstjórn Samiðnar, sem fundaði í Vestmannaeyjum í gær, lýsir yfir þungum áhyggjum af afkomu heimila félagsmanna sinna. Hún bendir á að á sama tíma og mörg fyrirtæki og bankar hagnist um stjarnfræðilegar upphæðir hafi aðeins lítill hluti félagsmanna aðildarfélaga Samiðnar fengið launahækkanir sem haldi í við verðbólgu. Og fyrir liggi að stærstur hluti þeirra hafi orðið fyrir kaupmáttarrýrnun. Miðstjórn Samiðnar telur að forsendur kjarasamninga séu brostnar miðað við núverandi verðbólgu, ástand efnahagsmála og launaþróun annarra hópa og hvetur hún verkalýðshreyfinguna til að vera samstíga í aðgerðum við að rétta hlut launafólks á almennum vinnumarkaði. Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Samiðnar, segir að gangi það ekki eftir að endurskoðunarnefnd um forsendur kjarasamninga nái ásættanlegri niðurstöðu verði hvatt til uppsagnar á kjarasamningum og þá þurfi að setjast að samningaborðinu á nýjan leik. Áhyggjurnar byggist á því að verðbólgan sé komin upp undir 4% en stærstur hluti félagsmanna hafi ekki fengið kauphækkun sem því nemi. Þeir verði því fyrir kaupmáttarrýrnun og vilja bætur. Félagið hvetur og önnur aðildarfélög til að vera samstíga Samiðn í þessu máli. Finnbjörn segir að launafólk í ASÍ verði að bregðast við þeirri launafrystingu sem hafi orðið með gegndarlausum félagslegum undirboðum sem felist í innflutningi á erlendu vinnuafli en það fái ekki greidd mannsæmandi laun og hafi ekki sömu réttindi og íslenskir starfsmenn. Miðstjórn Samiðnar krefst þess að stjórnvöld að setji skýrari reglur varðandi starfsmannaleigur og svokallaða þjónustusamninga sem notaðir séu sem skjól við að lækka laun í landinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Flughált í höfuðborginni og víðar um land Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Sjá meira