Kvöld í Hveró - Fabúla 21. apríl 2005 00:01
Fabúla heldur tónleika í Hveragerðiskirkju föstudagskvöldið 22. apríl en tónleikar hennar eru liður í konsertröðinni Kvöld í Hveró. Sveitasynir hita upp fyrir Fabúlu. Margrét Kristín Sigurðardóttir (Fabúla) kom fyrst fram á sjónarsviðið þegar hún sendi frá sér plötuna "Fabula - Cut my strings" haustið 1996. Tónlist hennar og sviðsframkoma heillaði íslenska áheyrendur og var þessi frumraun hennar á tónlistarsviðinu tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna, þá um haustið. Fabúla tók þátt í forkeppni Eurovision á Íslandi árið 2001 með laginu "Röddin þín" sem hafnaði í þriðja sæti. Platan "Kossafar á ilinni" kom út á því ári og vakti verðskuldaða athygli og hlaut einnig tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Textar Margrétar Kristínar eru margir hverjir sögur eða myndhverfingar og er tónlist hennar undir miklum leikhúsáhrifum. Á tónleikunum Hveragerðiskirkju mun hún flytja töluvert af nýju efni, en einnig lög af geislaplötunum "Cut My Strings" og "Kossafar á ilinni". Hljómsveit Fabúlu skipa Jökull Jörgensen (bassi), Birkir Gíslason (gítar), Erik Quick á trommur og Margrét Kristín (söngur, píanó og orgel). Sveitasynir hita upp fyrir Fabúlu. Þeir koma sterkir inn á tónleikasenuna nú í vor og flytja einungis frumsamið efni. Yfirlýst markmið Kvölds í Hveró er að auka fjölbreytni í menningu á svæðinu, opna augu almennings fyrir þeim möguleika að íslensk popptónlist eigi ekki síður heima í kirkju en klassíkin og gefa ungu og hæfileikaríku tónlistarfólki af Suðurlandi tækifæri til að að hita upp fyrir þá listamenn sem fram koma. Hljómburður í Hveragerðiskirkju þykir einstaklega góður. Aðstandendur Kvölds í Hveró eru Norsk-Íslenska Skjallbandalagið Inc. sem í eru Ásgerður Eyþórsdóttir og Monica Haug. Dagskrá Kvölds í Hveró er svohljóðandi: 22. apríl - Fabúla. Sveitasynir hita upp 6. maí - KK og Ellen. Jón Gunnar Þórarins hitar upp 20. maí - Eyfi og Stefán. Prímadonnur frá Selfossi hita upp 3. júní - Hljómsveitin Hjálmar. Helgi Valur Ásgeirsson hitar upp Miðaverð á tónleikana er 1.500 krónur. Frekari upplýsingar má finna á kvoldihvero.go.is, tonlist.is og í síma 692 8531. Sala á miðum fer fram í Hljóðhúsinu á Selfossi og við kirkjudyr. Hótel Örk í Hveragerði býður einnig upp á Nótt í Hveró í tengslum við tónleikana. Boðið er upp á gistingu með morgunverði ásamt tónleikamiða á aðeins 4900 kr. fyrir mann í tvíbýli. Pantanasími er 483 4700. Tilboðið gildir þá daga sem tónleikar eru haldnir. Allir tónleikarnir fara fram á föstudagskvöldum kl 21:00 í Hveragerðiskirkju nema tónleikar Stefáns og Eyfa, sem haldnir verða í Selfosskirkju, í samvinnu við menningarhátíðina Vor í Árborg sem fram fer 20. til 22. maí n.k. Skipulagning hennar stendur nú yfir.
Innlent Menning Mest lesið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Fleiri fréttir Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Sjá meira