Innlent

Einn sá hæfasti horfinn af þingi

Bjarni Benediktsson segir Sjálfstæðisflokkinn sjá á eftir einum mesta stjórnmálaleiðtoga sem uppi hefur verið síðan lýðveldi Íslands var stofnað. "Mér fannst formaðurinn færa afskaplega góð og sannfærandi rök fyrir því að hann hafi tekið ákvörðun að vel yfirlögðu ráði," sagði Bjarni er Davíð Oddsson hafði tilkynnt brotthvarf sitt úr stjórnmálum. Bjarni svaraði spurður að hann hefði ekki hugleitt framboð í varaformannsembættið, en honum lítist vel á að Geir H. Haarde leiddi flokkinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×