Innlent

64% ánægð með ráðningu Páls

Rúm 64 prósent landsmanna eru frekar eða mjög ánægð með ráðningu Páls Magnússonar í embætti útvarpsstjóra. Þetta kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups, sem mbl.is greinir frá í dag. Enginn munur er á afstöðu karla og kvenna til ráðningar Páls, en töluverður munur er eftir aldri svarenda. Mestrar óánægju gætir meðal svarenda á aldrinum 45-54 ára, en í þeim hópi eru 13,5 prósent sem segjast óánægð með ráðningu hans. Enginn munur er á afstöðu svarenda eftir búsetu, menntun, tekjum eða fylgi við stjórnmálaflokka. Könnunin var gerð dagana 10.-22. ágúst og var úrtakið rúmlega tólf hundruð manns.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×